Sameinuðu þjóðirnar 80 ára. 24.október 2025 fagna Sameinuðu þjóðirnar 80 ára afmæli. Þegar hillti undir lok Síðari heimsstyrjaldarinanr vorið 1945 komu fulltrúar fimmtíu ríkja saman á ráðstefnu í San Francisco í Bandaríkjunum undir merki Sameinuðu þjóðanna til að ræða um stofnun samnefndra nýrra alþjóðlegra samtaka.

Fram að þeim tíma voru Sameinuðu þjóðirnar heiti á bandamönnum í styrjöldinni gegn öxulveldunum svokölluðu; Þýskalandi, Ítalíu og Japan. Ráðstefnan stóð yfir frá 25.apríl til 26.júní 1945. Á þeim tíma var tekinn saman stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna sem lagði grunninn að hinum nýju alþjóðasamtökum. Vonin var sú að þau myndu koma í veg fyrir nýja heimsstyrjöld eins og þá sem hafði geisað.
Af Norðurlöndunum voru aðeins Danmörk og Noregur stofnmeðlimir en Ísland og Svíþjóð bættust í hópinn ári síðar og Finnland 1955.
Nú 80 árum eftir stofnun Sameinuðu þjóðanna vinna samtökin enn að því að viðhalda alþjóðlegum friði og stuðla að öryggi, veita bágstöddum mannnúðaraðstoð, vernda mannréttindi og viðhalda alþjóðalögum.
Nýjar áskoranir
Á sama tíma hafa verkefni bæst við sem stofnendurnir sáu ekki fyrir árið 1945. Sameinuðu þjóðirnar hafa þannig samþykkt Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun sem aðildarríkjum bera að ná fyrir árið 2030. Þau eiga að tryggja betri og sjálfbærari framtíð fyrir alla jarðarbúa. Þá hafa aðildarríkin samþykkt loftslagsaðgerðir til að stemma stigu við hlýnun jarðar.
Sameinuðu þjóðirnar hafa náð árangri en horfa til framtíðar. Enn er verið að rita sögu þeirra.
Sameinuðu þjóðirnar hafa fylkt liði á afmælisárnu undir vígorðinu „Byggjum framtíð okkar saman.“ Þessum orðum er ætlað að minna á að fjölþjóðasamstarf er mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Aldrei hefur verið þýðingarmeira að þjóðir og ríkisstjórnir taki höndum saman þvert á landamæri en þegar fjármálakreppur herja á heiminn, ráðist er á lýðræði og tjáningarfrelsi og átök geisa. .
UN80 frumkvæðið
Í tilefni af afmæli ýtti aðalframkvæmdastjórinn úr vör í mars síðastliðnum frumkvæði sem kennt er við afmælisárið (UN80 Initiative). Því er ætlað að skilgreina með hvaða hætti starf samtakanna getur verið skilvirkara, fara yfir umboð og framkvæmd þeirra og fara í saumana á breytingum í uppbyggingu og úrlausnarefnum innan Sameinuðu þjóða-kerfisins.
Nánari umfjöllun um Sameinuðu þjóðirnar á áttræðisafmælinu hér.
