Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt umfangsmiklar árásir Ísraelsmanna víðs vegar um Líbanon þann 8. apríl, sem leiddu til þess að hundruð almennra borgara létu lífið og særðust, þar á meðal börn, auk þess sem skemmdir urðu á borgaralegum innviðum.
„Aðalframkvæmdastjórinn fordæmir harðlega manntjón meðal almennra borgara og hefur miklar áhyggjur af vaxandi mannfalli meðal þeirra,“ sagði Stéphane Dujarric talsmaður António Guterres aðalframkvæmdastjóra í yfirlýsingu.
Þar segir að yfirstandandi hernaðaraðgerðir í Líbanon grafi undan vopnahléi milli Írans og Bandaríkjanna. Aðalframkvæmdastjórinn ítrekaði ákall sitt til allra aðila um að hætta hernaðaraðgerðum þegar í stað.
Árásir á þéttbýl svæði
Ísraelar gerðu umfangsmiklar loftárásir á Líbanon á miðvikudag – þrátt fyrir vopnahlé Bandaríkjanna og Írans sem tilkynnt var um nokkrum klukkustundum áður. Rúmlega 250 manns og 1.165 aðrir særðust, að sögn yfirvalda á staðnum.
Árásirnar voru gerðar á þéttbýl svæði, þar á meðal Beirút, án viðvörunar, og margir eru enn fastir undir rústum.
Sjúkrahús eru yfirfull, standa frammi fyrir fjölda slasaðra og alvarlegum skorti á birgðum.
