Ísrael. UNRWA. Ísraelsk yfivöld hófust handa við að rífa að minnsta kosti hluta bygginga sem hýsa höfuðstöðvar Palestínu-flóttamannahjálparinnar (UNRWA) í Austur-Jerúsalem í gær.
Þingmenn og ráðherra í Ísraelsstjórn fylgdust með þegar stórvirkar vinnuvélar byrjuðu niðurrifið. UNRWA flutti úr höfuðstöðvunum fyrir ári eftir að Ísrael bannaði starfsemina.
Philippe Lazzarini yfirmaður Palestínu-flóttamannahjálparinnar sagði að hér væru um að ræða „fordæmalausa árás” á Sameinuðu þjóðirnar enda nytu starfstöðvar þeirra friðhelgi og verndar samkvæmt alþjóðalögum.
Guterres fordæmir
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi aðgerðirnar kröftuglega.
„Aðalframkvæmdastjórinn segir að stigmögnun aðgerða gegn UNRWA sé með öllu óásættanleg,“ sagði í yfirlýsingu. Guterres hvatti Ísrael til að stöðva niðurrifið og skila byggingunum í hendur Sameinuðu þjóðanna á ný„án tafar.“
UNRWA: Alþjóðalög í hættu
Ísraelskar sveitir ruddu sér braut inn í heilsugæslustöð Palestínu-flóttamannahjálparinnar í Austur-Jerúsalem fyrr í þessum mánuði og létu loka henni. UNRWA segir að starfsfólk hafi verið „skelfingu lostið.” Á næstu vikum hyggst Ísrael skrúfa fyrir vatn og rafmagn til heilsugæslustöðva og skóla Palestínu-flóttamannahjálparinnar .

Áður hafa brennuvargar herjað á heilsugæslu og skóla flóttamannahjálparinnar á sama tíma og Ísrael hefur stundað umfangsmikla áróðursherferð, að sögn forstjórans.
Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í október að Ísrael bæri að greiða fyrir starfi Palestínu-flóttamannahjálparinnar í stað þess að hindra starfið. Þá ítrekaði dómstóllinn að Ísrael hefði ekki lögsögu yfir Austur-Jerúsalem.
„Það sem verið er að gera í dag við okkur, getur gerst hvenær sem er fyrir alþjóðlegar stofnanir eða sendiskrifstofur ríkja, hvort sem er á herteknu svæðunum eða annars staðar í heiminum,“ sagði Lazzarini. „Alþjóðalög hafa allt of lengi sætt árásum og ef aðildarríki bregðast ekki við munu þau hætta að skipta máli.“
Volker Türk mannréttindastjóri gagnrýndi einnig niðurrifið.
„Þetta er í takt við ýmislegt sem við höfum horft upp á undanfarið, svo sem árásir á hjálparstarf og stofnanir Sameinuðu þjóðanna“, sagði Ravina Shamdasani talsmaður mannréttindastjórans.

