Sameinuðu þjóðirnar harma lokun Al Jazeera í Ísrael

0
7
Blaðamenn Al-Jazeera í fyrra Gasastríði.
Blaðamenn Al-Jazeera í fyrra Gasastríði.Mynd: Al Jazeera English/Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0

Talsmaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna hefur gagnrýnt ákvörðun Ísraels um að banna sjónvarpsstöðinni Al Jazeera að senda út fréttir í landinu

Talsmaðurinn, Stéphane Dujarric, lýsti þungum áhyggjum sínum og minnti á miklvægi frjálsra fjölmiða.

„Við hörmum ákvörðun ísraelsku ríkisstjórnarinnar um að stöðva starfsemi Al Jazeera í landinu,” sagði Dujarric. „Tjáningarfelsi er grundvallar-mannréttindi og hvers kyns tilraunir til að takmarka það grefur undan þeim lýðræðislegu grundvallaratriðum sem við leitumst við að tryggja.”

Al Jazeera sendir út á arabísku, ensku og fleiri málum
Al Jazeera sendir út á arabísku, ensku og fleiri málum. Mynd: Al Jazeera English
Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0

Lokun Al Jazeeera: Brot á tjáningarfrelsi

Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna gagnrýndi einnig harðlega ákvörðun Ísraels um að banna útsendingar sjónvarpsstöðvarinnar í landinu og sagði hana brot á tjáningarfrelsi.

Skömmu eftir ákvörðunina réðist lögregla til atlögu við skrifstofur Al Jazeera og lagði hald á vinnutæki fréttamanna. Fréttamenn sjónvarpsstöðvarinnar hafa haldið áfram starfsemi á Gasasvæðinu þrátt fyrir árásir Ísraelshers sem kostað hafa starfsmenn þess lífið.

Sjónvarpsstöðin er í eigu Katar, en diplómatar ríkisins hafa reynt að miðla málum á milli Ísraela og Hamas, og reynt að tryggja lausn gísla sem teknir voru í árásinni á Ísrael 7.október.