A-Ö Efnisyfirlit

Sameinuðu þjóðirnar hvetja til stillingar í Íran

Samstöðufundur með fyrri mótmælum í Íran í Kanada.
Samstöðufundur með fyrri mótmælum í Íran í Kanada. Mynd: Albert Stoynov/Unsplash

 Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er felmtri sleginn yfir fréttum af ofbeldi og óhóflegri valdbeitingu gegn mótmælendum í Íran. Hann hvetur til stillingar og að fjarskipti verði endurreist. Mótmælaaldan hefur nú staðið yfir í á þriðju viiku.

„Írönum ber að geta lýst gremju sinni á friðsaman hátt og óttalaust,“ sagði talsmaður  António Guterres í yfirlýsingu á sunnudag.

„Virða ber og vernda tjáningarfrelsi, félagafrelsi og frelsi til friðsamlegra fundahalda eins og kveður á um í alþjóðalögum.“

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti írönsk yfirvöld til að sýna stillingu og forðast ónauðsynlega og hóflausa valdbeitingu.

Teheran úr lofti.
Teheran úr lofti. Mynd: © UNRCO Iran

Dýrtíðarkreppa

Mótmælin brutust út 28.desember eftir skyndilegt hrun íranska gjaldmiðilsins og hækkandi verðs á nauðsynjum í kjölfarið. Síðan hafa mótmæli breiðst út til 46 borga.

Mannréttindahópar hafa skýrt frá að minnsta kosti 50 dauðsföllum, og telja að þau séu sennilega miklu fleiri. Hundruð hafa verið handtekin.

Volker Türk Mannéttindastjóri Sameinuðu þjóðanna sagðist djúpt snortinn af fréttum af ofbeldi. Hann sagði í yfirlýsingu mikilvægt að þeir sem bæru ábyrgð á réttindabrotum sættu ábyrg samkvæmt alþjóðlegum mannréttindastöðlum.

Türk sagði þýðingarmikið að huga að undirliggjandi þáttum gremju almennings með „víðtækum og innihaldsríkum viðræðum.”

Grafið undan tjáningarfrelsi

Internet og farsímakerfum var lokað að kvöldi 8.janúar. Þar með var aðgangur að upplýsingum takmarkaður um leið og ofbeldi stigmagnaðist.

Türk sagði að slíkar aðgerðir græfu undan tjáningarfrelsi og aðgangi að upplýsingum. Nærri algjört fréttabann var sett á á föstudag. Hann hvatti til að skref yrðu tekin til að greiða fyrir aðgangi að upplýsingum, meðal annars með því að endurræsa fjarskiptakerfi.