A-Ö Efnisyfirlit

Sérfræðingar í mannréttindamálum hafa áhyggjur af ásökunum í „Epstein-skjölunum“

Epstein-skjjölin: Mullaly er sérstakur skýrslugjafi um mansal, einkum á konum og börnum.
Epstein-skjjölin: Mullaly er sérstakur skýrslugjafi um mansal, einkum á konum og börnum. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

Epstein-skjölin.Mansal. Óháðir mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa hvatt til réttlætis og að sekir verði dregnir til ábyrgðar í málum ungra kvenna  sem voru kerfisbundið seldar mansali samkvæmt ásökunum í svokölluðum Epstein-skjölum.

Sérfræðingarnir, sem eru skipaðir af Mannréttindaráðinu, gáfu einnig út yfirlýsingu vegna „viðvarandi ofbeldis feðraveldiskerfa“ sem kemur fram í skjölunum. Bandaríska dómsmálaráðuneytið hóf birtingu þeirra seint á síðasta ári.

Hið gríðarmikla safn skjala, mynda, flugskráa og annarra gagna sem tengjast rannsóknum á athæfi hins látna fjármálamanns og barnaníðings Jeffrey Epstein frá New York hefur verið tilefni mikilla lagalegra og pólitískra umræðna undanfarna mánuði í Washington DC og víðar.

Flest fórnarlömb mansals í heiminum eru konur.
Epstein-skjölin: Flest fórnarlömb mansals í heiminum eru konur. Mynd: IOM.

Epstein-skjölin: Kallað eftir gagnsærri rannsókn

„Við höfum miklar áhyggjur af trúverðugum ásökunum í „Epstein-skjölunum“ um kerfisbundið mansal á ungum konum og stúlkum í kynferðislegum tilgangi og köllum eftir fullri og gagnsærri rannsókn,“ sögðu sérfræðingarnir í yfirlýsingu.

Ásakanirnar beinast að háttsettum stjórnmálamönnum, opinberum persónum, erindrekum, leiðtogum í alþjóðlegu viðskiptalífi og fremstu fræðimönnum og lýsa víðtæku mansali á stúlkum og ungum konum yfir mörg alþjóðleg landamæri áratugum saman.

„Ástandið varpar ljósi á rótgróna mismunun og ofbeldi feðraveldiskerfa og refsileysi”, sagði Siobhán Mullally, sérstakur erindreki um mansal, einkum á konum og börnum, og fimm meðlimir vinnuhópsins um mismunun gegn konum og stúlkum.

Fórnarlamb mansals á Filippseyjum
Epstein-skjölin: Fórnarlamb mansals á Filippseyjum. Mynd: UNODC / Laura Gil

Refsileysishefð

Sérfræðingarnir lögðu áherslu á að mansal á börnum og ungum konum væri alvarlegt refsivert brot og gróft mannréttindabrot og lýstu yfir miklum áhyggjum af „algjörlega ófullnægjandi“ viðbrögðum ríkisstjórna og löggæsluyfirvalda.

„Sú vanræksla að tryggja ábyrgð viðheldur refsileysishefð sem skaðar konur og stúlkur óhóflega og grefur undan loforðinu um jafna vernd samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum,“ sagði í yfirlýsingu óháðu sérfræðinganna.

Mansal: Stuðningur við fórnarlömb

„Fórnarlömb og þolendur verða að vera í forgrunni árangursríkra viðbragða við mansali sem taka mið af áföllum og kynjasjónarmiðum,“ sagði í yfirlýsingunni. „Þau verða að tryggja læknisaðstoð, þar á meðal þjónustu á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis, sálfélagslega aðstoð og langtíma félagslega aðlögun og bataúrræði.“

Þar sem alþjóðleg athygli á málinu fer dvínandi kölluðu sérfræðingarnir eftir áþreifanlegum aðgerðum, ábyrgð og brýnum ráðstöfunum til að tryggja aðgang að réttlæti, svo og skaðabótum, tryggingum fyrir því að brot endurtaki sig ekki og gagnsæi.

„Ríkjum ber skylda til að bregðast við og sú skylda er löngu tímabær,“ sögðu þeir.

Allir óháðir sérfræðingar fá umboð sitt frá Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf. Þeir eru ekki starfsmenn Sameinuðu þjóðanna og fá ekki greitt fyrir störf sín.