A-Ö Efnisyfirlit

Sevilla ráðstefna: tillaga um skatt á milljarðamæringa

Þessi snekkja er sögð kosta 220 milljónir Bandaríkjadala en hún er í eigu auðkýgins í tæknigeiranum. Mynd © Arno Senoner/ Unsplash.
Þessi snekkja er sögð kosta 220 milljónir Bandaríkjadala en hún er í eigu auðkýgins í tæknigeiranum. Mynd © Arno Senoner/ Unsplash.

 Ráðstefna um fjármögnun þróunar. Ójöfnuður. Spánn og Brasilía hafa í sameiningu lagt til að skattleggja ríkasta fólk heims á heimsvísu í því skyni að berjast gegn vaxandi ójöfnuði og tryggja að þeir sem breiðust hafa bökin leggi sitt af mörkum.

Fjórða Ráðstefna um fjármögnun þróunar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna stendur yfir 30.júní til 3.júli. Tillagan var kynnt á ráðstefnunni.

Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla sett í morgun.
Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla var sett í morgun.

Henni er ætlað að taka á og vekja athygli á vaxandi vandamáli: ríkustu einstaklingarnir leggja oft og tíðum minna af mörkum til samneyslu en venjulegir skattgreiðendur, þökk sé lægri skattþrepum og glufum í skattalögum.

Spænski aðstoðar-fjármálaráðherrann Jesús Gascón ávarpar fund ráðstefnunnar um fjármögnun þróunar af skjá. Mynd: UN News/Matt Wells
Spænski aðstoðar-fjármálaráðherrann Jesús Gascón ávarpar fund ráðstefnunnar um fjármögnun þróunar af skjá. Mynd: UN News/Matt Wells

„Ríki okkar þurfa sífellt meiri tekjur. Ójöfnuður er hvarvetna vandamál og hinir ríkustu borga minni skatta en miðstéttin og jafnvel minna en tekjulágir skattgreiðendur,“ sagði Jesús Gascón aðstoðarfjármálaráðherra Spánar á blaðamannafundi í Sevilla.

Ríkisstjórnirnar tvær hvetja önnur ríki til að taka þátt í herferð í þágu stighækkandi skattakerfis. Þeir benda á að þá staðreynd að ríkasta eina prósentið í heiminum eiga meira en 95% mannkyns samanlagt.

Ráðstefnan um fjármögnun þróun.
Ráðstefnan um fjármögnun þróun. Mynd: Marescal/UN Photo

Að skiptast á upplýsingum

Aðgangur að áreiðanlegum upplýsingum skiptir sköpum í innbyrðistengdum heimi. Í frumkvæði landanna tveggja er áhersla lögð á að deila upplýsingum á milli ríkisstjórna og skattayfirvalda. Markmiðið með því er að finna glufur í skattkerfum, loka þeim og berjast gegn skattaundanskotum og skattsvikum.

Með því að efla tölfræðiþekkingu og bæta greiningu á tölfræði eru skattayfirvöld betur í stakk búin til að átta sig á hvar og hvernig auður safnast upp, hversu mikið er greitt í skatt og hvaða breytinga er þörf.

Einkaþota og lúxúsbifreið. Mynd: Alen Kajtezovic/Unsplash
Einkaþota og lúxúsbifreið. Mynd: Alen Kajtezovic/Unsplash

Þótt nokkur árangur hafi náðst nú þegar, telja ríkin að meiri aðgerða sé þörf og að fleiri ríki þurfi að slást í hópinn.

„Það er brýn þörf á að komast að því hverjir þeir eru sem eru raunverulegir eigendur fyrirtækja og hvaða lagarammar eru notaðir til að fela auðæfi,“ segir Gascón.

Alheims auðæfaskrá?  

Spánn og Brasilía hugleiða einnig að stíga skref í átt til auðævaskrár á heimsvísu, en viðurkenna að slíkt taki tíma, krefjist pólitísks vilja og meiri háttar átaks á vettvangi einstakra ríkja.

En markmiðið er skýrt: meiri gegnsæi, betri reikningsskil og sanngjarnari framlög af hálfu hinna ríkustu.

„Sá ójöfnuður sem þrífst er ólíðandi og hann hefur færst í vöxt á undanförnum árum,“ segir José Gilberto Scandiucci fulltrúi Brasilíu hjá Sameinuðu þjóðunum og vísar því á bug að hér sé ferðinni ofur-vinstrisinnuð stefnumið.

Þátttakandi í ráðstefnunni um fjármögnun þróunar
Þátttakandi í ráðstefnunni um fjármögnun þróunar. Mynd: Marescal/UN Photo

 Ráðstefna um fjármögnun þróunar

Tillagan er framlag til Aðgerðavettvangs Sevilla (Seville Platform for Action). Honum er ætlað safna sjálfviljugum aðgerðum til að margefla Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun, sem eiga langt í land með að verða að veruleika fyrir 2030 eins og stefnt er að.