Endurheimt vistkerfa. Skógar, ár, votlendi og höf búa yfir ómissandi auðlindum, allt frá fæðu og hreinu vatni til lífsviðurværis og verndar gegn öfgum í veðurfari. Samt hafa vistkerfi og tegundirnar sem á þeim byggja mátt þola hnignun í áratugi.

Árið 2021 hleyptu UNEP og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna af stokkunum Áratug Sameinuðu þjóðanna um endurheimt vistkerfa og hvöttu stjórnvöld og alþjóðlega samstarfsaðila til að endurheimta um einn milljarð hektara af röskuðu landi – svæði sem er stærra en Kína.
Heimurinn enn ekki á réttri leið
Fimm árum síðar greinir skýrslan frá því að endurheimt standi yfir á 252 milljónum hektara vistkerfa í 149 löndum, svæði sem er álíka stórt og Kasakstan. Þessar aðgerðir hafa skapað meira en milljón græn störf og milljónir manna hafa fengið þjálfun tengda endurheimt. Á heimsvísu gæti endurheimt vistkerfa skapað meira en 32 milljónir nýrra starfa fyrir árið 2030.
Þrátt fyrir þennan árangur er heimurinn ekki á réttri leið með að ná markmiðinu um að minnst 30% raskaðra vistkerfa verði komin í virka endurheimt fyrir árið 2030. Markmiðið var samþykkt í Kunming-Montreal-rammanum um líffræðilega fjölbreytni.
Hvers vegna endurheimt náttúrunnar skiptir máli
Endurheimt vistkerfa getur hjálpað til við að takast á við ýmsar samtengdar áskoranir á heimsvísu, svo sem tap líffræðilegrar fjölbreytni, loftslagsbreytingar, fæðuóöryggi og lífsviðurværi viðkvæmra samfélaga.
Rannsóknir benda til þess að endurheimt aðeins 15% forgangssvæða um allan heim gæti komið í veg fyrir 60% af áætlaðri útrýmingu tegunda. Heilbrigð og endurheimt vistkerfi geta einnig tekið upp og bundið kolefni og þannig stuðlað að því að halda hlýnun jarðar í skefjum. Auk þess gæti skógarlandbúnaður – þar sem trjárækt er samþætt ræktun nytjajurta eða búfjárhaldi – bætt fæðuöryggi 1,3 milljarða manna.
Misjafn árangur eftir vistkerfum
Þótt endurheimt miði áfram er árangurinn enn misjafn. Endurheimt á landi hefur náð nærri helmingi alþjóðlega viðmiðsins, en sjávar- og strandvistkerfi hafa náð 23%. Ferskvatnsvistkerfi, sem hnigna sérstaklega hratt, hafa aðeins náð 5%.
Verkefni á borð við Ferskvatnsáskorunina, Flaggskipsverkefni smáeyþróunarríkja um endurheimt og Alþjóðasjóðinn fyrir kóralrif miða að því að hraða aðgerðum í vistkerfum sem hafa fengið minni athygli.
Í skýrslunni er einnig lögð áhersla á mikilvægi þess að skipuleggja endurheimt á heilum landslags- og hafsvæðum í stað þess að einblína eingöngu á einstaka staði eða skógrækt. Árangursrík verkefni tengja saman búsvæði, fá stjórnvöld og fyrirtæki til þátttöku og viðurkenna þekkingu og forystu frumbyggja og nærsamfélaga.
Ónóg fjármögnun er enn stór hindrun. Samkvæmt skýrslunni þarf árleg fjárfesting í endurheimt vistkerfa að meira en fjórfaldast, úr 64 milljörðum Bandaríkjadala í 296 milljarða Bandaríkjadala fyrir árið 2030.
