A-Ö Efnisyfirlit

Slóvakía: Mannréttindasérfræðingar áhyggjufullir vegna frelsisskerðinga

Bratislava, höfuðborg Slóvakíu
Bratislava, höfuðborg Slóvakíu. Mynd: Martin Katler/Unsplash

Slóvakía.

Ríkisstjórn Slóvakíu ber að binda þegar í stað enda á smánun og ofsóknum á hendur almannasamtökum, blaðamönnum og samtökum innan borgaralegs samfélags, segja mannréttindasérfræðingar* á vegum Sameinuðu þjóðanna í sameiginlegri yfirlýsingu. 

Gina Romero sérstakur erindreki um fundafrelsi.
Slóvakía: áhyggjur vegna skerðina á fundafrelsi. Gina Romero er sérstakur erindreki um fundafrelsi.

„Undanfarið ár hefur Slóvakía mátt þola að gengið hafi veirð á grundvallarfrelsi,“ segja sérfræðingarnir. „Þaggað hefur verið niður í borgaralegu samfélagi. Almannasamtök, fjölmiðlar og friðsamir mótmælendur sæta auknum þrýstingi.“

Þeir vara sérstaklega gegn því að almannsamtök séu útmáluð sem  „erlendir útsendarar“. Þá fetta þeir fingur út í fjandsamlegan málflutning um samtök innan borgaralegs samfélags. Þeir láta í ljós ótta um að settar verði verulegar skorður við pólitísku andófi og lýðræðislegu frelsi.

Tjáningar- og fundafrelsi í hættu

„Við höfum þungar áhyggjur af aðgerðum ríkisstjórnarinnar, sem ógna lykilstofnunum ríkisins, og tjáningar- og fundafrelsi,“ segja sérfræðingarnir.

Mary Lawlor sérstakur erindreki um verjendur mannréttinda.
Slóvakía: verjendur mannréttinda hafa sætt smánun. Mary Lawlor sérstakur erindreki um verjendur mannréttinda.

Þeir hvetja til aðgerða til að tryggja að réttur til friðsamlegs fundahalds og tjáningar sé virtur í samræmi við alþjóðlega staðla.

Sérfræðingarnir benda á að verjendur mannréttinda, blaðamenn og mótmælendur verði í sífellt ríkari mæli skotspónar. Ríkisstjórnin hafi staðið að baki herferðum til að smána gagnrýna blaðamenn. Aðgangur að opinberum atburðum hafi verið takmarkaður og þar með hafi réttur óháðra fjölmiðla verið takmarkaður.

Afskipti af fjölmiðlum

Ríkisstjórnin hafi á prjónunum að skipa nýjan ríkisfjölmiðil í stað þess sem nú er. Grafið sé undan sjálfstæði hans með því að greiða fyrir pólitískum afskiptum. Hávær mótmæli hafi verið höfð uppi af hálfu óháðra fjölmiðla, auk verkfalls í geiranum.

Irene Khan sérstakur erindreki um skoðana- og tjáningarfrelsi
Slóvakía: sótt er að tjáningarfelsi. Irene Khan er sérstakur erindreki um skoðana- og tjáningarfrelsi

Sérfræðingarnir vara við fyrirhugaðri lagasetningu, sem myndi draga verulega úr rétti til friðsamlegs fundahalds. Í henni væru ákvæði sem takmörkuðu mótmæli við opinberar byggingar og einkaheimili. Með því væri grafið undan rétti slóvakískra borgara til að tjá óánægju. Væri slíkt brot á alþjóðalögum.

Aðgerðir gegn saksóknara

„Okkur er misboðið yfir meintum njósnum um aðgerðarsinna með njósnaforritum á borð við Pegasus af hálfu yfirvalda,“ segja sérfræðingarnir. „Sama máli gegnir um öfgakennda beitingu valds gegn friðsamlegum mótmælum, geðþótta handtökur, slæman aðbúnað í varðhaldi og glæpavæðingu verjenda mannréttinda í landinu.“

Ben Saul sérstakur erindreki um baráttu gegn hryðjuverkum og mannréttindi
Ben Saul sérstakur erindreki um baráttu gegn hryðjuverkum og mannréttindi

Þá vöruðu þeir við því að leggja niður skrifstofu sérstaks saksónara, sem rannsakaðu spillingu á æðstu stöðum. Flutningur starfsins til ríkissaksóknaraembættisins hefði ýtt undir áhyggjur af veikingu ábyrgðarkerfisins.

*Mannréttindasérfræðingarir eru skipaðir af Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, en eru sjálfstæðir og ólaunaðir. Þeir eru Gina Romer sérstakur erindreki um réttinn til friðsamlegra fundahalda, Mary Lawlor sérstakur erindreki verjenda mannréttinda, Ben Saul sérstakur erindreki um baráttu gegn hryðjuverkum og mannréttindi, Irene Khan sérstakur erindreki um skoðana- og tjáningarfrelsi, Margaret Satterthwaite sérstakur erindreki um sjálfstæði dómara og lögfræðinga, Graeme Reid óháður sérfræðingur um vernd gegn ofbeldi og mismunun vegna kynhneigðar og kynvitundar.