A-Ö Efnisyfirlit

Sólarhringur í Havana: Þar sem fólk reynir að komast af

Í ljósaskiptunum kastar ungur maður færi af Malecón, sjávarvarnargarðinum sem meðfram jaðri Havana.Mynd: OCHA
Í ljósaskiptunum kastar ungur maður færi af Malecón, sjávarvarnargarðinum sem meðfram jaðri Havana.Mynd: OCHA

Kúba. Viðskiptabann. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt nýja ályktun þar sem hvatt er til þess að viðskiptabanni Bandaríkjanna gegn Kúbu verði aflétt.

Ályktunin, þar sem hvatt er til þess að efnahags-, viðskipta- og fjármálabanni gegn eyjunni verði aflétt, hlaut 130 atkvæði með, 17 á móti og 25 sátu hjá. Stuðningurinn hefur ekki verið minni síðan 1995.

Bruno Rodriguez, utanríkisráðherra Kúbu, sakaði Washington um að reyna að „ráða örlögum þjóðarinnar“ og „sölsa undir sig“ auðlindir hennar.

Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, neitaði því að Kúba sætti hafnbanni og sagði að „neyð kúbversku þjóðarinnar væri alfarið sök þessarar spilltu kommúnistastjórnar“.

Spennan milli utanríkisráðherra Kúbu og sendiherra Bandaríkjanna, stigmagnaðist í hörð orðaskipti milli þeirra tveggja, sem varð til þess að forseti allsherjarþingsins gerði stutt hlé á þingfundinum.

Reynt að veiða í soðið.
Reynt að veiða í soðið. Mynd: OCHA

Sameinuðu þjóðirnar veita lífsnauðsynlegai aðstoð

Hitt er þó óumdeilt að Kúba gengur í gegnum erfiða tíma.

Eftir að hafa greint meira en 100 mannúðarvísa hefur CERF, Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna, skilgreint Kúbu sem eina af 12 verst fjármögnuðu mannúðarkrísum heims, ásamt Afganistan, Súdan og Jemen.

Hinn 2. október úthlutaði CERF 4 milljónum Bandaríkjadala til að styðja lífsbjargandi aðstoð á Kúbu, með áherslu á fæðuöryggi, heilbrigðismál, vatn og hreinlæti, auk flutninga.

OCHA, Samræmingarskrifstofa SÞ í mannúðarmálum, hefur birt lýsingu á einum degi í lífi Kúbverja.

Rafmagn er af skornum skammti.
Rafmagn er af skornum skammti. Mynd: OCHA

Dagurinn hefst oft í myrkri

Vatn. Ljós. Símasamband sem virkar. Eitthvað í kvöldmatinn. Í Havana er það orðið dagsverk út af fyrir sig að komast í gegnum daginn.

Rafmagnið gæti hafa farið einhvern tíma um nóttina og kemur ef til vill ekki aftur fyrr en á morgun. Kranarnir gætu verið þurrir. Ísskápurinn hætti að virka fyrir nokkrum klukkustundum.

Áður en nokkur fer að heiman þarf að reikna dæmið. Er nóg vatn til að þvo sér, eða bara til að elda? Er síminn hlaðinn? Hvaða matur þarf að endast fram að kvöldmat?

Örfáir, oftast einkareknir matsölustaðir hafa nægt fé til að knýja rafstöðvar.
Örfáir, oftast einkareknir matsölustaðir hafa nægt fé til að knýja rafstöðvar. Mynd: OCHA

Um alla Kúbu varir rafmagnsleysi nú oft lengur en sólarhring og nærri helmingur landsins býr við vatnsskort. Flestar dælurnar sem sjá fyrir vatninu ganga fyrir rafmagni.

Strætisvagnar koma sjaldan. Fólk ferðast um á rafhjólum, vélhjólum og fótstignum þríhjólum, sem mörg hver ganga nú fyrir rafhlöðum.

Eldsneyti sem tekist hefur að skrapa saman er oft endurselt við vegarkantinn. Sumir bílstjórar fá meira fyrir að selja eldsneyti en að aka farþegum, svo erfiðara er að fá leigubíl.

Eldsneyti er illfáanlegt og dýrt.
Eldsneyti er illfáanlegt og dýr.t Mynd: OCHA

Fyrir utan bankana hefur þegar myndast biðröð. Margir þeirra sem bíða eru eftirlaunaþegar sem vona að hraðbankarnir hafi rafmagn í dag. Ef ekki, reyna þeir aftur á morgun.

Sumir ala einnig upp barnabörn sín. Íbúum Kúbu hefur nýlega fækkað um nærri einn af hverjum sjö, þar sem yngri Kúbverjar á vinnualdri hafa flutt burt.

Hiti dagsins

Um hádegi rýkur hitinn yfir 34 °C og ekki er hægt að kveikja á viftum.

Sorphirðubílar þurfa líka eldsneyti. Flugur og moskítóflugur dafna og undanfarið hafa veirusjúkdómar gengið um borgina.

Þeir sem veikjast eiga fárra kosta völ um meðferð. Sjúkrahús taka aðeins við bráðatilfellum og mörg lyf eru ófáanleg. Um hundrað þúsund manns bíða eftir skurðaðgerð, og á þeim biðlista eru tólf þúsund börn.

Hraðbankar eru oft lokaðir vegna rafmagnsleysis
Hraðbankar eru oft lokaðir vegna rafmagnsleysis. Mynd: OCHA

Í leit að sambandi

Síðdegis klifrar fólk upp á húsþök og svalir í leit að örlitlu símasambandi og smá ferskum blæ. Vegna takmarkaðs eldsneytis til rafmagnsframleiðslu slökkva margir farsímasendar oft á sér, svo símar þurfa að leita sambands við fjarlæga og yfirhlaðna senda. Símtal kann að vera eina leiðin til að ná í ættingjana erlendis sem halda heimilinu gangandi.

Svo þarf að huga að kvöldmatnum. Kúba framleiðir nú innan við helming þess matar sem landið framleiddi fyrir fimm árum. Án rafmagns eru akrar ekki vökvaðir. Án eldsneytis skemmist uppskeran áður en hún kemst til borgarinnar.

Við sjávarsíðuna í leit að svalara lofti
Við sjávarsíðuna í leit að svalara lofti. Mynd: OCHA

Þegar hitanum slotar fyllist sjávarvarnargarðurinn af fólki sem leitar að svalara lofti, félagsskap og sumir að einhverju til að veiða í kvöldmatinn.

Hafið er allt um kring, en samt er fiskur orðinn of dýr fyrir margar fjölskyldur. Bátana skortir eldsneyti, vinnslugeta er takmörkuð og mikilvægir innviðir í sjávarútvegi hafa skemmst. Opinber afli eyjarinnar hefur helmingast á fjórum árum.

Þegar ljósin slokkna

Síðan myrkvast borgin, hverfi fyrir hverfi. Ljós logar enn í fáeinum gluggum. Landsnetið hefur bilað að minnsta kosti átta sinnum á þessu ári.

Við götuna halda nokkrir litlir veitingastaðir og kaffihús – aðallega lítil fjölskyldufyrirtæki sem hafa efni á eldsneytinu – ljósunum logandi með hjálp rafala.

Í Havana talar fólk um að lifa „un día a la vez“, einn dag í einu. Morgundagurinn getur virst órafjarri.

Myrk borg séð af sjó.
Myrk borg séð af sjó. Mynd: OCHA

Það hefur ekki verið neitt eitt augnablik sem dregur að sér athygli heimsins: enginn einn stormur, ekkert eitt stríð. Þess í stað hafa áföllin dunið yfir hvert á fætur öðru, allt frá fellibyljum og jarðskjálftum til margra ára skorts.

Á þessu ári hafa strangar innflutningstakmarkanir enn frekar takmarkað aðgang að eldsneyti, lyfjum og nauðsynjavörum, dýpkað orkukreppuna og valdið álagi á sjúkrahús, vatnsveitur og matvælaframleiðslu. Í byrjun þessa árs þurftu meira en fjórir af hverjum tíu Kúbverjum á mannúðaraðstoð að halda.

Sjá einnig hér. 

Þeir sem vilja styðja íbúa Kúbu og aðra sem lent hafa í mannúðarkrísum víða um heim smellið hér.