Spilling
Danmörk telst minnst spillta land heims, en Finnland kemur í humátt á eftir. Ísland var í ellefta sæti á lista um spillingu í heiminum síðasta ári en hækkar um eitt sæti í ár.
Transparency International tekur saman lista yfir opinbera spillingu í heiminum. World Economics samtökin hafa unnið einkunnagjöf upp úr gögnum, sem liggja að baki listanum. Samkvæmt henni er 0 þá gjörspilling en 100 engin spilling.
Danir fengu einkunnina 90 af hundraði og verma efsta sætið eins og í fyrra. Finnar fá 88 í einkunn en Singapore, Nýja Sjáland, Lúxemborg og Noregur eru öll með 81. Þar rétt á eftir eru Sviss og Svíþjóð með 80. Ísland fær einkunnina 77.
Spillingarlistinn (The Corruption Perceptions Index (CPI)) nær til opinbera geirans og byggir á mati sérfræðinga og stjórnenda í atvinnulífinu. Transparency International birti hann fyrst 1995.

Hvað er spilling?
Að mati Skrifstofu Sameinuðu þjóðanna sem berst gegn fíkniefnum og glæpum (UNODC), er spilling „fljótandi og breytilegt hugtak, sem táknar mismunandi hluti fyrir mismunandi fólk.“ Hugtakið nær yfir margs konar athæfi, þar á meðal misnotkun opinbers valds eða embættis eða valds í einkahagsmunaskyni, með mútum, fjárkúgun, áhrifasölu, frændhygli, svikum eða fjársvikum.
Milljarðar manna búa í spilltum ríkjum
Spilling hefur minnkað verulega í 32 ríkjum frá 2012, en mikið verk er óunnið. Ástandið í 148 ríkjum hefur lítið breyst eða versnað á sama tíma. Heimsmeðaltalseinkunnin 43 hefur staðið í stað í nokkur ár. Tveir þriðju hlutar ríkja fá 50 eða lægra í einkunn. Milljarðar búa því í ríkjum þar sem spilling er viðvarandi og grefur undan mannréttindum.
31.október 2003 samþykkti Allsherjarþingið Sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spilling (United Nations Convention against Corruption). Frá þeim tíma hafa 190 ríki undirgengist ákvæði sáttmálans um aðgerðir gegn spillingu. Þá var samþykkt að 9.desember skyldi vera Alþjóðadagur gegn spillingu.
