A-Ö Efnisyfirlit

Stafrænt ofbeldi gegn konum færist í vöxt

Kastlósið beinist að stafrænu ofbeldi á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi.
Kastlósið beinist að stafrænu ofbeldi á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi.

Milljónir kvenna verða fyrir fyrir stafrænu áreiti á hverju ári. Kynbundið ofbeldi er algengasta mannréttindabrot í heimi. Það er í sívaxandi mæli drifið áfram af hröðum tæknibreytingum. 25.nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundu ofbeldi.

Ný tegund kynferðilegs áreitis dafnar nú í krafti nýrrar stafrænnar tækni. Í nýjustu skýrslu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynbundið ofbeldi vakin sérstaklega á ofbeldi sem felur í sér notkun skrumskældra mynda, djúpfölsuðu klámi, og útbreiðslu rangfærslna um málefni kynja.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst 25.nóvember.
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst 25.nóvember. Mynd: UN Women/Mohammad Rakibul Hasan

Alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi

Alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi er haldinn á Íslandi og markar upphaf  árlegs Sextán daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi frá 25.nóvember til 10.desember. Að þessu sinni er dagurinn helgaður baráttunni gegn stafrænu ofbeldi

„Löggjöf um stafrænt ofbeldi í ríkjum Evrópu nær ekki að halda í við þær öru breytingar sem eiga sér stað á stafrænum miðlum, og eru í raun alltaf skrefi á eftir,“ skrifarði Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi í grein á Vísir.is. „Mörg Evrópuríki hafa viðurkennt að stafrænt ofbeldi er ekki aðeins mannréttindabrot, heldur lýðheilsuvandi sem þarf að taka á. Þrátt fyrir þetta eru viðbrögð við stafrænu ofbeldi brotakennd.“

Árleg Ljósa­ganga UN Women á Íslandi fer fram þriðjudaginn 25. nóvember kl. 17:00

Að þessu sinni er gengið í minningu baráttukonunnar Ólafar Töru Harðardóttur.

Evrópa og Bandaríkin

Þá eru niðurstöður skoðanakannanar IPSOS MORI sláandi. Þar voru konur á aldrinum 18-55 í Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Ítalíu, Nýja Sjálandi, Póllandi, Spáni og Svíþjóð, spurðar um reynslu af ofbeldi á netinu.

  • Nærri 23% allra kvenna í þessum 8 ríkjum höfðu að minnsta kosti einu sinni sætt árásum eða áreitni á netinu.
  • Hlutfallið var mismunandi eða frá 16% á Ítalíu til 33% í Bandaríkjunum.

Stærstur hluti kvenna í öllum ríkjunum taldi viðbrögð yfirvalda við netárásum of lítil. Fimm sinnum fleiri konur í Svíþjóð (57%) töldu viðbrögðin ófullnægjandi en fullnægjandi (11%). Þriðjungur í Bretlandi, Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi (32-33%), töldu viðbrögðin ófullnægjandi.

Hvað er stafrænt ofbeldi?

Tækni-ofbeldi (Technology-facilitated violence) felur í sér ýmsan verknað þar sem stafræn tækni er notuð til að valda líkamlegum, kynferðislegum, sálrænum, félagslegum, pólitískum eða efnahagslegum skaða. Stafræn rými hafa reynst olía á eld þess ofbeldis sem fyrir var. Þar má nefna áreitni, eltihrelli, hatursorðræðu, persónuþjófnað. Nú bætast við nýjar leiðir til áreitni eins og tölvuinnbrot, birting viðkæmra og persónulegra upplýsinga og neteinelti.  Eltihrellar vaða uppi á netinu og það er notað til að ná tangarhaldi á konum, þar á meðal börnum.

Beijing-yfirlýsingin þrítug

Nú þegar þrjátíu ára afmælis Beijing-yfirlýsingarinnar er minnst er kynbundið ofbeldi enn viðvarandi. Þriðja hver kona má búast við að sæta ofbeldi á æviskeiði sínu. Átök, kreppur og þrálátar staðalímyndir grafa undan framförum.

Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Women) og sérstakt átak aðalframkvæmdastjórans (UNiTE) hvetja ríkisstjórnir, borgaralegt samfélag, æskuna, einkageirann og Sameinuðu þjóða-kerfið að ráðast til atlögu gegn þessari vaxandi ógn.

Í hnotskurn

Rannsóknir benda til að 16 til 58% kvenna hafi sætt þessari tegund ofbeldis. Þá hefur fjórða hver unglinsstúlkna orðið fyrir obeldi í sambandi fyrir 19 ára aldur

UNiTE herferðin hvetur til aðgerða í sjö liðum.

  • Glæpavæða stafrænt ofbeldi.
  • Efla viðbrögð löggæslu.
  • Draga tæknifyrirtæki til ábyrgðar.
  • Vernda konur í opineru lífi.
  • Efla stafrænt læsi og viðnám.
  • Fjárfesta í forvörnum gegn karlrembu.
  • Langtíma stuðningur við kvennarheyfingar.

Sjá nánar um 16 daga virkni hér og algengar spurningar hér.