A-Ö Efnisyfirlit

Starf UNRWA heldur enn áfram

Börn að leik innanum rústir í Al Nuseirat á miðju Gasasvæðinu.
Börn að leik innanum rústir í Al Nuseirat á miðju Gasasvæðinu. Mynd: © UNICEF/Eyad El Baba

Palestínu-flóttamannahjálpin (UNRWA) heldur áfram starfi sínu á Gasasvæðinu og herteknum svæðum á vesturbakka Jórdanar, þar á meðal í Austur-Jerúsalem. Vopnahlé á milli Ísraels og Hamas virðist nú hanga á bláþræði.

„Heilsugæslustöðvar okkar um allan vesturbakkann, þar á meðal í Austur-Jerúsalem, eru opnar og mannúðarstarfið á Gasa heldur áfram. Við erum staðráðin í að fara hvergi og skila okkar starfi,“ sagði UNRWA í yfirlýsingu á netinu.

Ísraelska þingið, Knesset, samþykkti á síðasta ári að gera UNRWA útlægt á yfirráðasvæði Ísraels frá og með 30.janúar.

Samræmingarskrifstofa mannúðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna (OCHA) segir að umtalsvert meiri mannnúðaraðastoð berist til Gasa þökk sé vopnahléinu sem gekk í gildi 19.janúar.

Margir Gasabúar hafa snúið heim.
Margir Gasabúar hafa snúið heim. Mynd: UN News

Vopnahléið verður að halda

Forðast ber með öllum ráðum að átök blossi upp að nýju á Gasaströndinni, segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Óttast er að þriggja vikna gamalt vopnahléssamkomulag Hamas og Ísraels haldi ekki mikið lengur.

„Ég hvet Hamas til að leysa gísla úr haldi á laugardag eins og ráð var fyrir gert ,” sagði Guterres í yfirlýsingu. „Deilendur verða að framfylgja að fullu skuldbindingum sínum samkvæmt samkomulaginu og halda áfram viðræðum í Doha um næstu lotu.“

Hamas kvaðst ekki leysa gísla úr haldi á Gasa á laugardag vegna þess að Palestínumenn séu enn drepnir þar og of lítil aðstoð berist.

Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur sagt að vopnahléinu ljúki standi Hamas ekki við sitt.