A-Ö Efnisyfirlit

Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna lést og fimm særðust í árás á Gasasvæðinu

Jorge Moreira da Silva forstjóri UNOPS (til hægri) á blaðamannafundi í dag, 19.mars, í Brussel. Til vinstri Sherri Aldis forstjóri UNRIC.
Jorge Moreira da Silva forstjóri UNOPS (til hægri) á blaðamannafundi í dag, 19.mars, í Brussel. Til vinstri Sherri Aldis forstjóri UNRIC. Mynd: UNRIC/Jorgé Varas-Mardones

Gasasvæðið.

Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna lést og fimm særðust, sumir alvarlega, í árás á höfuðstöðvar UNOPS, verkefnaþjónustu samtakanna, í Deir al-Balah á Gasasvæðinu í dag 19.mars. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna krefst rannsóknar á árásinni.

Þetta var í þriðja skiptii á jafn mörgum dögum, sem stöðvar UNOPS sættu árásum.

„Ég vil leggja áherslu á að Ísraelsher er vel kunnugt um þetta vinnusvæði og staðsetningu þess,“ sagði Jorge Moreira da Silva forstjóri UNOPS á blaðamannafundi í Brussel. „Það er á allra vitorði hverja þar er að finna; einungis starfsfólk UNOPS og annara stofnana Sameinuðu þjóðanna,“ sagði da Silva.  „Ég vil taka fram að þetta svæði er afskekkt, engar byggingar eru nærliggjandi.“

Frá blaðamannafundi UNOPS í dag.
Frá blaðamannafundi UNOPS í dag. Mynd: UNRIC/Miranda Alexander-Webber

Da Silva forstjóri sagði að engin starfsemi tengd jarðsprengjum eða hreinsun sprengiefnis fari fram þarna, þótt slíkt sé á verksviði UNOPS.

Skotið á stöð UNOPS

„Það er ekki hægt að fullyrða á þessu stigi hvers konar atvik er um að ræða. Sprengju var skotið á stöð UNOPS og sprakk innanhúss. Ekki er vitað hvort sprengju var kastað úr lofti, eða skotið úr fallbyssu eða flugskeyti,“ sagði da Silva.

Gestahús eru á vinnusvæði UNOPS, sem hafa hýst æðstu yfirmenn Sameinuðu þjóðanna sem heimsótt hafa Gasa.

UNOPS forstjórinn sendi þeim sem um sárt eiga að binda eftir árásina og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Þjóðerni hins látna hefur ekki verið gefið upp.

„Árás á vinnusvæði mannnúðarstarfsmanna er brot á alþjóðalögum,“ sagði da Silva. „Ég ítreka áskoranir Sameinuðu þjóðanna um að endurnýja vopnahlé, leyfa flutninga mannúðaraðstoðar og láta gísla lausa.“

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er staddur í Brussel. Hann hitti í dag að máli Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er staddur í Brussel. Hann hitti í dag að máli Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins. Mynd. UNRIC/Marian Blondeel

Krefst rannsóknar

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði í yfirlýsingu að hann væri dapur og felmtri sleginn yfir dauða starfsmannsins.

„Aðalframkvæmdastjórinn fordæmir harðlega allar árásir á starfsfólk Sameinuðu þjóðanna og hvetur til ítarlegrar rannsóknar. Hann leggur áherslu á að ætíð ber að haga stríðsrekstri með þeim hætti að almennir borgarar njóti virðingar og verndar,“ sagði í yfirlýsingu sem talsmaður hans gaf út.

Að minnsta kosti 280 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa verið drepnir á Gasasvæðinu frá 7.október 2023.

(Greinin hefur verið uppfærð)

Sjá um UNOPS hér.