A-Ö Efnisyfirlit

SÞ: Bandaríkjamenn gagnrýndir fyrir framkomu yfirvalda í tengslum við HM í knattspyrnu

Heimsmeistarakeppnin 2026 hefst 12. júní. Mynd: Fauzan Saari / Unsplash
Heimsmeistarakeppnin 2026 hefst 12. júní. Mynd: Fauzan Saari / Unsplash

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu 2026. Mannréttindi. Æðsti yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum hefur kallað eftir „gagngerri endurskoðun“ á innflytjenda- og öryggisstefnu Bandaríkjanna í aðdraganda heimsmeistaramótsins. Hann varar við því að kynþáttamiðaða mismunun, eftirlit og harkalega framkomu hafi þegar áhrif á lið, embættismenn og knattspyrnuáhugamenn.

 Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði við blaðamenn á miðvikudag að ef ekki yrði tekið á slíkum málum væri hætta á að þau myndu varpa skugga á mótið, sem hefst á fimmtudag í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

„Stórir íþróttaviðburðir eiga að vera viðburðir þar sem heimurinn kemur saman í einingu og friði, sagði hann.

„Stórir íþróttaviðburðir eiga að vera viðburðir þar sem heimurinn kemur saman í einingu og friði,“ sagði Volker Türk. Mynd: FIFA.
„Stórir íþróttaviðburðir eiga að vera viðburðir þar sem heimurinn kemur saman í einingu og friði,“ sagði Volker Türk. Mynd: FIFA.

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu verður að vera „virðuleg og örugg“

„Hefðin [í Grikklandi hinu forna] var sú að lýst var yfir vopnahléi. Það er ljóst að heimsmeistaramótið þarf að tryggja virðulegt og öruggt umhverfi fyrir liðin sem keppa, en einnig fyrir stuðningsmenn, fyrir allt samfélagið og satt að segja fyrir allan heiminn.“

Meðal atvika sem tengjast komu útlendinga til Bandaríkjanna vegna mótsins er að íranska landsliðið neyddist til að flytja æfingabúðir sínar frá Arizona til Mexíkó, þar sem sumum írönskum embættismönnum var neitað um vegabréfsáritun.

Sómölskum dómara var neitað um landvist og snúið við af „öryggisástæðum”. Þá hafa myndir birst sem sýna hvernig leitað var á senegölskum leikmanni á flugvelli í Bandaríkjunum.

Ferðaskilríkjum knattspyrnuáhangenda frá til dæmis Marokkó og Skotlandi hefur verið hafnað eða vegabréfsáritanir afturkallaðar skömmu fyrir brottför. Hafa viðkomandi setið upp með veruleg fjárútlát.

Heimsmeistaramótið 2026 fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Myndir: Mynd eftir Aleksey Smagin / Unsplash
Heimsmeistaramótið 2026 fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Myndir: Mynd eftir Aleksey Smagin / Unsplash

Mannréttindi: Víðtækari áhyggjur

Türk varaði við því að þessi dæmi séu áhyggjuefni enda hluti af almennri framkvæmd innflytjendalaga í Bandaríkjunum. Hann hvatti til að endurskoðunar með mannréttindi og mannlega reisn að leiðarljósi, sérstaklega á alþjóðlegum viðburði sem ætlað er að leiða fólk saman.

Mannréttindastjórinn lagði áherslu á að á stórum íþróttaviðburðum ættio að tryggja öruggt og aðgengilegt umhverfi fyrir leikmenn, aðdáendur og embættismenn. Hann lýsti heimsmeistaramótinu sem tækifæri til að stuðla að einingu og benti á að alþjóðlegt eðli keppninnar leggi þá ábyrgð á herðar gestgjafaþjóða að þær virði alþjóðlega staðla.

Binda enda á afmennskun

Mannréttindastjórinn lét skoðanir sínar í ljós í tengslum við víðtækari skoðun á mannréttindamálum sem tengjast stórum íþróttaviðburðum og ábyrgð gestgjafaþjóða.

„Ég vona líka að bundinn verði endi á afmennskun annarra, afmennskun farandfólks, afmennskun flóttafólks og hælisleitenda,“ hélt Türk áfram.

„Enginn hagnast á sundrandi og pólaríserandi orðræðu.“

Sjá einnig hér.