A-Ö Efnisyfirlit

SÞ fagna 1,8 milljarða dala framlagi Bandaríkjanna til mannúðarmála

Matjurtagarður samfélagsins í Malakal í Suður-Súdan sem er rekinn með stuðningi frá SÞ. Mynd: OCHA/Adedeji Ademigbuji
Matjurtagarður samfélagsins í Malakal í Suður-Súdan sem er rekinn með stuðningi frá SÞ. Mynd: OCHA/Adedeji Ademigbuji

Mannúðaraðstoð. Viðbótarframlag Bandaríkjanna upp á 1,8 milljarða dala til mannúðarmála mun gera Sameinuðu þjóðunum og samstarfsaðilum þeirra kleift að auka neyðaraðstoð til milljóna manna um allan heim, á sama tíma og vaxandi þarfir á heimsvísu og fjárskortur neyða hjálparstofnanir til að draga úr aðstoð.

Tilkynning Bandaríkjanna um auknar fjárveitingar þýðir að framlög Bandaríkjanna að undanförnu í gegnum samræmingarkerfi Sameinuðu þjóðanna er orðin 3,8 milljarða dala. Áður höfðu 2 milljarðar dala verið greiddar í desember.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagnaði nýjasta framlaginu og sagði að það „muni gera mannúðarstarfsfólki kleift að ná til milljóna manna þar sem þörfin er brýnust með lífsnauðsynlegum stuðningi.“

Tom Fletcher, yfirmaður neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna, lýsti fjármögnuninni sem mikilvægri á tímum þegar mannúðarstofnanir eru „ofþandar, vanfjármagnaðar og sæta bókstaflega árásum.“

Yfirmaður neyðaraðstoðar SÞ, Tom Fletcher (í miðju), ásamt sendiherranum Mike Waltz (hægra megin) og Jeremy P. Lewin frá Bandaríkjunum halda sameiginlegan blaðamannafund um fjármögnun til mannúðarkerfisins. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe
Yfirmaður neyðaraðstoðar SÞ, Tom Fletcher (í miðju), ásamt sendiherranum Mike Waltz (hægra megin) og Jeremy P. Lewin frá Bandaríkjunum halda sameiginlegan blaðamannafund um fjármögnun til mannúðarkerfisins. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

„Þessi stuðningur mun hjálpa til við að bjarga milljónum mannslífa,“ sagði Fletcher í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna  í New York, þar sem hann kom fram ásamt Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna, og Jeremy Lewin, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna fyrir erlenda aðstoð, mannúðarmál og trúfrelsi.

Fjármögnunin kemur á sama tíma og mannúðarstofnanir standa frammi fyrir vaxandi þrýstingi vegna átaka, fólksflótta, loftslagsáfalla og minnkandi fjárveitinga frá gjafalöndum. Samkvæmt áætlunum þurfa um 239 milljónir manna um allan heim nú á mannúðaraðstoð að halda.

Fjármögnun hjálpar milljónum

Fletcher sagði að fyrri tveggja milljarða dala hlutinn sem tilkynnt var um í desember hefði þegar gert hjálparstofnunum kleift að veita 14,4 milljónum manna lífsnauðsynlega aðstoð á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2026.

„Það erur fréttir sem við ættum öll að vera stolt af og fagna,“ sagði hann.

Fyrri fjármögnunarpakkinn beindist að 18 tilteknum verkefnum þar sem neyðarástand ríkir.

Mannúðaraðstoð hjálpar til við að bæta aðgengi fólks á flótta að öruggu vatni, hreinlætisaðstöðu og hreinlætisþjónustu. Mynd: UNOCHA/Myaa Aung Thein Kyaw
Mannúðaraðstoð hjálpar til við að bæta aðgengi fólks á flótta að öruggu vatni, hreinlætisaðstöðu og hreinlætisþjónustu. Mynd: UNOCHA/Myaa Aung Thein Kyaw

Frá og með þessari viku var þegar búið að ráðstafa 1,71 milljarði dala af þeirri úthlutun, þar sem stofnanir Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðilar stefna að því að ná til meira en 22 milljóna manna eingöngu með úthlutun Bandaríkjanna.

Mikilvæg líflína

Fletcher sagði að fjármögnunin hefði verið „líflína á mikilvægu augnabliki“ þegar mannúðaraðgerðir áttu á hættu að hrynja vegna mikils niðurskurðar á fjármagni og truflana í birgðakeðjum.

Meðal þeirrar aðstoðar sem þegar hefur verið veitt fengu meira en sex milljónir manna matarhjálp, á meðan 10,4 milljónir manna fengu aðgang að öruggu vatni. Fjármögnunin styður einnig meira en 690 heilsugæslustöðvar og beina aðstoð til yfir 779.000 heimila.

Að auki fá um 300.000 stúlkur og 266.000 drengir stuðning vegna alvarlegrar vannæringar, en fjármagni hefur einnig verið beint að verndarþjónustu fyrir konur og stúlkur, þar á meðal þolendur kynferðisofbeldis.

„Við getum staðið við loforðin“

Fletcher sagði að mannúðarkerfið væri að flýta fyrir umbótum sem miða að því að bæta skilvirkni, ábyrgð og staðbundna ákvarðanatöku.

Stofnanir hefðu dregið úr skrifræði, stytt úthlutunartíma og aukið gagnsæi með rafrænu rakningarkerfi sem sýnir hvar fjármunum er varið, sagði hann.

„Við höfum sýnt að við getum staðið við loforðin – jafnvel við erfiðustu aðstæður,“ sagði hann.

Fletcher lagði einnig áherslu á að mannúðarþarfir halda áfram að vaxa hraðar en tiltæk úrræði, en í mannúðaráætlun SÞ fyrir árið 2026 er óskað eftir 23 milljörðum dala til að veita 87 milljónum manna um allan heim bráða aðstoð.

„Áhersla okkar fram á við,“ sagði hann, „er að tryggja afganginn af þeirri fjármögnun sem við þurfum til að framkvæma þessa metnaðarfullu áætlun, og síðan að fara út og framkvæma hana.“

Sjá einnig hér.