SÞ og ESB ræða nýjar reglur um samfélagsmiðla

0
83
Pallborðsumræður um aðgerðir ESB í stafrænum málum.
Pallborðsumræður um aðgerðir ESB í stafrænum málum. Mynd: UNRIC.

Upplýsingaóreiða. Samfélagsmiðlar. Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar skiptust á skoðunum um nýjar reglur ESB um samfélagsmiðla á málþingi í Brussel í þessari viku. Reglunum er ætlað að skapa öruggara og opnara stafrænt umhverfi innan og utan Evrópusambandsins.

Þátttakendur í pallborði og áheyrendur fóru í saumana á því hvaða áhrif svokallaða Stafræna þjónustu gerðin (Digital Services Act) ESB hefði utan lögsögu þess. Melissa Fleming framkvæmdastjóri alheims-samskipta hjá Sameinuðu þjóðunum stýrði umræðum.

Melissa Fleming framkvæmdastjóri alþjóðlegra samskipta hjá Sameinuðu þjóðunum.
Melissa Fleming framkvæmdastjóri alþjóðlegra samskipta hjá Sameinuðu þjóðunum. Mynd: UNRIC

„Við hjá Sameinuðu þjóðunum teljum það mikla hvatningu að Evrópusambandið líti út fyrir landamæri Evrópu í þessu málefni,“ sagði Fleming. „Áhrif aðgerða ESB er farið að gæta jafnvel áður en reglurnar taka gildi. Það má jafnvel búast við að þessi gerð verði í raun og veru skapalón fyrir regluverk í heiminum.“

Samstillt alþjóðleg viðbrögð

Í pallborðsumræðum vísaði Fleming til stefnumótunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna um háttsemi á stafrænum vettvangi, sem kynnt var fyrr í þessum mánuði. Skýrslunni er ætlað að skapa ramma um samstillt alþjóðleg viðbrögð til höfuðs útbreiðslu hatursorðræðu og upplýsingafalsana í hinu stafræna rými með samþykkt stafrænna hátternisreglna.

Hátternisreglur

Hátternisreglur verða unnar í samráði við alla hlutaðeigandi aðila.
Hátternisreglur verða unnar í samráði við alla hlutaðeigandi aðila. Mynd: Alexander Shatov/Unsplash

Skýrslan mun liggja til grundvallar hátternisreglum sem Sameinuðu þjóðirnar eru að þróa í aðdraganda svokallaðs Leiðtogafundar framtíðarinnar á næsta ári.

Eins og hin nýja stafræna gerð ESB, stefna hátternisreglurnar að því að breyta samfélagsmiðlum og ýta þeim frá skaðlegum viðskiptamódelum þar sem mannréttindum, einkalífi og öryggi, er fórnað á altari vinsælda.

Hátternisreglurnar munu byggja á alþjóðlegum rannsóknum. Sameinuðu þjóðirnar hafa í því skyni virkjað fræðasamfélag heimsins til að semja aðferðafræði reglnanna, sem munu einnig ná til notkunar gervigreindar.

„Hátternisreglunar sem verið er að þróa munu taka tillit til aðstæðna í hverju ríki heimsins. Við munum ekki hafa vald til að refsa fyirtækjum, en við teljum að við höfum töluverð siðferðilegt boðvald,“ sagði Fleming.

Vandrataður meðalvegur

Brögð hafa verið að því að samfélagsmiðlar séu misnotaðir á skaðlegan hátt.
Brögð hafa verið að því að samfélagsmiðlar séu misnotaðir á skaðlegan hátt. Mynd: Rodion Kutsaiev/Unsplash

Þátttakendur í pallborði voru á einu máli um þörfin á að taka höndum saman um þetta málefni og líta á það frá eins mörgum sjónarhornum og kostur er. Þræða þarf einstigi á milli verndar mannréttindi og þess að vernda fólk fyrir skaðlegum áhrifum upplýsingafalsanna.

„Okkar leið verður að vera í mörgum víddum, byggja á mannréttindum og ná til allra hlutaðeigandi aðila,“ sagði Fleming.

Pallborðsumræðurnar voru hluti af eins dags umræðum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gekkst fyrir. Þátttkendur voru rúmlega 1600 í Brussel og á netinu.

Ítarlegri upplýsingar:

  • Aðgerðir Evrópusambandsins á stafrænum vettvangi sjá hér og hér
  • Á meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst hrundu Sameinuðu þjóðirnar af stað Verified herferðinni til þess að hjálpa fólki til að varast upplýsingafalsanir um COVID-19. Herferðin mun í vaxandi mæli snúa sér að loftslagsbreytingum.
  • Drög að stafrænum hátternisreglum SÞ sjá hér og hér.