A-Ö Efnisyfirlit

Stríðið í Úkraínu er smánarblettur segir Guterres

Mæðgur ganga fram hjá illa skemmdri verksmiðju í Kyiv eftir loftárás.
Mæðgur ganga fram hjá illa skemmdri verksmiðju í Kyiv eftir loftárás. Mynd:: © UNICEF/Filippov

Allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað í yfirlýsingu að allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu hafi verið brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum.

„Þetta hörmulega stríð er smánarblettur á sameiginlegri vitund okkar og er enn ógn við frið og öryggi á svæðinu og á alþjóðavísu,” segir Guterres í yfirlýsingu í tilefni þess að í dag eru fjögur ár liðin frá innrásinni

Hann bendir á að því lengur sem stríðið vari því mannskæðara verði það. Fleiri óbreyttir borgarar en nokkru sinni létust í átökunum árið 2025.

Starfsfólk UNOPS, verkefnaþjónustu Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu virða fyrir sér skemmdir.
Starfsfólk UNOPS, verkefnaþjónustu Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu virða fyrir sér skemmdir. Mynd: UNOPS

„Þetta er einfaldlega óásættanlegt. Ég ítrekaði hvatningu mína um tafarlaust, undantekningalaust og skilyrðislaust vopnahlé, sem fyrsta skref í átt til réttláts, varanlegs og heildstæðs friðar. Réttlátur friður verður að vera í samræmi við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, alþjóðalög og viðeigandi ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Virða ber sjálfstæði, fullveldi og landamæri Úkraínu.“

Öryggisráðið fundar

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman til fundar í dag um Úkraínumálið. Úkraína óskaði eftir fundinum með stuðningi Evrópuríkja í ráðinu; Bretlands, Danmerkur, Frakklands, Grikklands og Lettlands.

Umræða í Öryggisráðinu í gær.
Umræða í Öryggisráðinu. Mynd: UN Photo/Manuel Elías

Fjölmörg ríki, sem ekki eiga sæti í ráðinu, þar á meðal Úkraína, munu taka þátt í fundinum í samræmi við reglur þess. Ekki er búist við að Öryggisráðið álykti um málið. Hins vegar hefur Úkraína óskað eftir því að 11. neyðarfundur allsherjarþingsins verði kallaður saman á ný til að fjalla um ályktun um „stuðning við varanlegan frið í Úkraínu“. Þar er ítrekaður stuðningur allsherjarþingsins við fullveldi, sjálfstæði og landamæri Úkraínu, auk tafarlauss vopnahlés.

Sjá einnig: Hvað gera Sameinuðu þjóðirnar í Úkraínu fjórum árum eftir innrásina? hér.