Ástandinu í borginni El Fasher í Súdan verður ekki líkt við annað en „myrkasta víti” að sögn háttsetts embættismanns Sameinuðu þjóðanna. Hinar svokölluðu RSF-vígasveitir hafa náð yfirráðum yfir El Fasher, höfðustað norður Darfur héraðs, eftir 500 daga umsátur. Tugir þúsunda óbreyttra borgara hafa flúið fótgangandi. Fréttir berast af fjöldaaftökum, nauðgunum og hungri.
Tom Fletcher yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum flutti Öryggisráði samtakanna skýrslu í gær. „Konum og stúlkum er nauðgað, fólk er limlest og drepið – algjörlega refsilaust,“ sagði Fletcher. „Við heyrum ekki angistarvein þeirra, en á meðan við sitjum hér heldur hryllingurinn áfram.“
Fjöldaaftökur
Eftir að hafa ráðið niðurlögum súdanska stjórnarhersins (SAF) í síðasta vígi hans í Darfur-héraði, fóru vígamenn RSF hús úr húsi. „Okkur hafa borist trúverðugar frásagnir um umfangsmiklar aftökur,“ sagði Fletcher.
Hátt í 500 sjúklingar og fjölskyldur þeirra hafa verið drepnir á Saudi-fæðingasjúkrahúsinu. Ráðist hefur verið á fjölmargar heilbrigðisstofnanir í átökunum.
„Tugir þúsunda skelfingu lostinna og hungraðra, óbreyttra borgara hafa flúið eða eru á vergangi,“ sagði Fletcher. „Þeir sem eru í stakk búnir til að flýja, aðallega konur, börn og eldra fólk, sætir fjárkúgunum, nauðgunum og ofbeldisverkum.“
Hryllingurinn breiðist út
Martha Pobee aðstoðarframkvæmdastjóri um málefni Afríku gaf öryggisráðinu einnig skýrslu. Hún sagði að bæði RSF og SAF hefðu aukið drónaárásir og þær breiddust út. Nú væri ráðist á skotmörk handan Bláu Nílar, í suðurhluta Kordofan, vesturhluta Darfur og í Khartoum. „Árásir eru gerðar víðar en áður,” varaði hún við.
„Hættan á fjöldamorðum, ofbeldi sem beinist að einstökum kynþáttum og brotum á alþóðlegum mannúðarlögum þar á meðal kynbundnu ofbeldi er enn gríðarlega mikil,“ tjjáði. Pobee öryggisráðinu.
Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hefur skráð fjöldamorð, aftökur án dóms og laga bæði í El Fasher og Bara. Í síðarnefndu borginni hafa 50 óbreyttir borgarar verið drepnir undanfarna daga. Á meðal þeirr eru fimm súdanskir sjálfboðaliðar hjá Rauða hálfmánanum að sögn Pobee.
Tveggja ára stríð í Súdan hefur bitnað harðast á óbreyttum borgurum. Astandið í landinu er í einu orði sagt skelfilegt.
Um tólf milljónir manna hafa flúið heimili sínu og eru engin dæmi um slíkan fjöldaflótta í heiminum. Þetta er álíka og rétt rúmur íbúafjöldi Belgíu eða Svíþjóðar. Um 3.8 milljónir hafa flúið á náðir nágrannaríkja.
