A-Ö Efnisyfirlit

Súdan:  hungur, dauði og nauðganir eru hlutskipti tuga ef ekki hundruð þúsunda kvenna

Þúsundir eru á flótta í Súdan innan eða utanlands
Þúsundir eru á flótta í Súdan innan eða utanlands. Mynd: UNHCR/Ala Kheir

Nauðganir. Nauðgunum er beitt sem vopni í átökunum í Súdan. Örlög kvenna eru í sívaxandi mæli að líða hungur, sæta ofbeldi og tína lífi, einfaldlega vegna þess að þær eru konur.

„Við höfum talað við konur í El Fasher, miðpunkti síðustu hamfaranna í Súdan. Þær segja okkur frá því að þær hafi mátt þola sult, brottrekstur, nauðganir og sprengjuárásir,“ segir Anna Mutavati stjórnandi Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UN Women) í austur- og suðurhluta Afríku.

„Barnshafandi konur ala börn sín á götum úti því síðasta fæðingarsjúkrahúsið hefur verið rænt og eyðilagt.“

Fólk kemur til Tawila á flótta frá  El Fasher.
Fólk kemur til Tawila á flótta frá El Fasher. Mynd: UNOCHA/Mohamed Elgoni

Tortíming heillra samfélaga

RSF vígasveitirnar náðu yfirráðum yfir El Fasher, höfuðstað Norður-Darfur-héraðs eftir 500 daga umsátur síðla í október. Fréttir hafa borist af miklum voðaverkum, þar á meðal aftökum án dóms og laga og kynbundu ofbeldi.

Átök blossuðu upp í apríl 2023 á milli súdanska stjórnarhersins og RSF-vígasveitanna. Þá runnu umskipti frá herstjórn til borgarlegra stjórnvalda út í sandinn. Fjórum árum fyrr hafði Omar al-Bashir alvaldi Súdans um árabil verið vikið frá völdum.

Heilu samfélögin hafa orðið tortímingu að bráð. Milljónum hefur verið stökkt á flótt og mannnúðarkreppa, sem þegar var til staðar, versnað um allan helming.

Örþeytt flóttafólk í Tawila í norðurhluta Darfur í Súdan i lok október.
Örþeytt flóttafólk í Tawila í norðurhluta Darfur í Súdan i lok október. Mynd: OCHA

Kynferðislegt ofbeldi er stríðsglæpur

Árið 2008 lýsti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna því yfir að beiting kynferðislegs ofbeldis í hernaði væri stríðsglæpur, glæpur gegn mannúð (mannkyninu) og gæti falið í sér þjóðarmorð.

Samræmingarskrifstofa mannnúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum (OCHA) skýrði frá því á mándag að nærri 89 þúsund manns hefðu flúið frá El Fasher-svæðinu. Sumir hafa leitað griða nærri landamærum Súdans og Tsjads.

„Konur hafa sagt okkur frá hryllilegri ferð.Þ ær eru í hættu við að verða fyrir kynferðisofbeldi við hvert fótmál. Þegar þær sækja vatn, safna eldiviði eða bíða í röð eftir matarúthlutun,“ sagði Anna Mutavati fulltrúi UN Women. „Það eru sífellt fleiri sannanir fyrir því að nauðgun er beitt vísvtiandi og kerfisbundið sem vopni í hernaði.“

Enginn griðastaður

Hún varaði við því að „líkamar kvenna eru orðnir glæpavettvangur,” og sagði hergi væri griðastað að finna.

„Grunngildi hafa hrunið,“ sagði Mutaviti. Hún sagði frá því að einn pakki af dömubindum kostaði 27 Bandaríkjadali (3500 krónur á gengi dagsins). Til samanburðar má nefna að mannúðaraðstoð í reiðufé nemur150 dölum (18.450 krónur) fyrir sex manna fjölskyldu í einn mánuð.

Mutavati sagði að heilbrigðisstarfsmenn hefðu skýrt frá sívaxandi vannæringu hjá kornabörnum, ofto og tíðum vegna þess að sveltandi mæður hefðu ekki næga brjóstamjólk.

„Það eru keðjuverkanir af völdum þess hungurs, sem konur líða.”