Sýrland. Sýrlandsráðstefna.
Danir létu langmest af hendi rakna af Norðurlöndum á Sýrlandsráðstefnu Evrópusambandsins í Brussel 17.mars. Alls söfnuðust rúmlega 5.8 milljarðar evra til að mæta þörfum Sýrlands 2025 og 2026. Þar leggur sjálft Evrópusambandið fram 2.5 milljarða.
Evrópusambandið hélt níundu Sýrlandsráðstefnuna undir heitinu Samstaða með Sýrlandi: að mæta þörfum árangursríkra umskipta ( Standing with Syria: Meeting the Needs for a Successful Transition).
Mynd WikimediaCommons/Qasioun News Agency CC BY 3.0
70% þurfa á mannúðaraðstoð að halda
Danmörk leggur til andvirði um 90 milljóna evra, Noregur kemur þar á eftir með um 30 milljónir evra, Finland 16.5 milljónir og Svíþjóð 11 milljónir. Kristján Andri Stefánsson sendiherra Íslands í Brussel tók þátt í ráðstefnunni og tilkynnti um ný áheit fyrir árið 2028, alls 140 milljónir króna. Þegar lágu fyrir framlög Íslands næstu árin, það er 300 milljónir í ár, 300 milljónir árið 2026 og 220 milljónir árið 2027.
Þessu fé verður varið til mannúðaraðstoðar, uppbyggingar mikilvægra innviða og til að tryggja stöðugleika. Milljónir manna lifa í örbirgð og hafa ekki aðgang að grundvallarþjónustu.
Borgarastríð var í Sýrlandi í þrettán ár og var afleiðingin ein mesta mannúðarkeppa síðari tíma. Sameinuðu þjóðirnar telja að 16.7 milljónir eð 70% íbúanna þurfi á mannúðaraðstoð að halda til að lifa af. 90% Sýrlendinga eru undir fátæktarmörkum og efnahagurinn er í rjúkandi rúst. Atvinnuleysi hefur þrefaldast og þjóðartekjur eru aðeins fjórðungur af því sem þær voru fyrir stríð.
Sjá einnig hér.
(Greinin hefur verið uppfærð).
Fleiri greinar:
Standing with Syria – Brussels ninth conference, 17 March 2025
