Flóttamannastjóri Sameinuðu þjóðanna er vongóður um að nú sjái fyrir endann á þjáningum sýrlensku þjóðarinnar og að sýrlenskir flóttamenn geti byrjað að snúa aftur heim til Sýrlands.
„Nú er einstakt tækifæri fyrir Sýrland til að þokast nær friði og fólkið að byrja að snúa aftur til síns heima,“ sagði Filippo Grandi flóttamannastjóri. „En þar sem ástandið er enn óvissu háð, eru milljónir flóttamenn nú að velta vöngum gaumgæfilega yfir því hversu öruggt það er. Sumir eru fúsir, aðrir eru hikandi.
Þolinmæði er þörf
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) mælir með því áfram skuli haldið að skoða heimflutning. Þolinmæði og árvekni sé nauðsynleg þótt vonir standi til að þróunin verði jákvæð. Með öðrum orðum að flóttamenn geti snúið aftur af fúsum og frjálsum vilja á öruggan og sjálfbæran hátt. Gera verði flóttamönnum kleift að taka upplýstar ákvarðanir.
„Það verður þungt á metunum í þeim ákvörðunum, hvort aðilar í Sýrlandi munu setja í forgang að koma á lögum og reglu. Það er þýðingarmikið til að fólk treysti að ástandið sé öruggt, að umskiptunum fylgi virðing fyrir réttindum, mannslífum og vonum allra Sýrlendinga af hvaða þjóðarbroti sem það er, hvaða trú sem það játar eða hvaða stjórnmálaskoðanir sem það aðhyllist,“ segir Grandi.
Erfitt ástand í Sýrlandi
Innviðir í Sýrlandi hafa skaddast og rúm 90% treysta á mannúðaraðstoð. Brýnnar aðstoðar er þörf nú er vetur gengur í garð.
Geir Pedersen sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Sýrlanadi er í tengslum við allar fylkingar, sem hafa hlutverki að gegna í framtíð landsins.
Pedersen segir að alþjóðasamfélagið skuldi Sýrlendingum að „hlusta, framkvæma og vinna sleitulaust” svo glæpir Assad-stjórnarinnar verði ekki endurteknir.
Í yfirlýsingu sinni sagði Pedersen að hann væri sleginn yfir þeim myndum og frásögnum, sem borist hafa af föngum, sem látnir hafa verið lausir.
„Þessar myndir eru djúpstæður vitnisburður um ólýsanlegar þjáningar og sársauka, sem fangarnir, fjölskyldur þeirra og ástvinir hafa mátt þola.“
Erindrekinn lagði áherslu á að varðveita þurfi tryggilega sannanir fyrir glæpum sem framdir hafa verið í fangelsum, til þess að hjálpa fjölskyldum við að ná rétti sínum og draga hina seku til ábyrgðar.
Stærsta flóttamannavandamál heims
Flóttamannahjálpin hafði spáð því að 2025 yrðu 7.2 milljónir Sýrlendinga á flótta innanlands og 6.2 milljónir flóttamenn erlendis, einkum í nágrannaríkjunum Egyptalandi, Írak, Jórdaníu, Líbanon og Tyrklandi.
Frá upphafi sóknar uppreisnarmanna 27.nóvember hefur svo 1 milljón lent á vergangi og er margt af því fólki að flýja í annað sinn.
Hins vegar hafði meir en hálf milljón manna flúið til Sýrlands frá Líbanon undan árásum Ísraels frá því september. Um 60% þeirra voru landflótta Sýrlendingar en afgangurinn Líbanir.
Sjá einnig hér.
