Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra situr tveggja daga ráðstefnu hjá Sameinuðu þjóðunum um tveggja ríkja lausn í deilum Ísraela og Palestínumanna.
Utanríkisráðherra hitti António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna að máli í tengslum við fundinn í gær.
Eftir hann skrifaði Þorgerður Katrín á samskiptamiðilinn X að hún og Guterres hefðu rætt leiðir til friðar og varanlegra lausna í Mið-Austurlöndum. Þá hefði áframhaldandi stuðningur við Úkraínu verið á dagskrá.
„Nú þegar áttræðisafmæli Sameinuðu þjóðanna er framundan ítrekar Ísland stuðning sinn við fjölþjóðakerfið og hlutverk Sameinuðu þjóðanna sem þýðingarmikillar alheimsstofnunar,” skrifaði utanríkisáðherra.
Bandaríkin og Ísrael sniðganga
Þorgerður Katrín hitti aðalframkvæmdastjórann við upphaf þriggja daga ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um tveggja ríkja lausn á áratuga gamalli deilu Ísraela og Palestínumanna. Með tveggja ríkja lausn er átt við að hvor þjóð um sig fengi sitt sjálfstætt ríki, sem myndu lifa í friði hlið við hlið.
Ísrael og Bandaríkin sniðganga ráðstefnuna sem er fer fram undir forsæti Frakklands og Sádi Arabíu.
