Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur kosið fimm lönd til tveggja ára setu í öryggisráði samtakanna frá og með 1. janúar 2027.
Portúgal og Austurríki sigruðu í fyrstu umferð með 134 og 131 atkvæði – vel yfir þeim tveggja þriðju meirihluta sem krafist var. Þýskaland fékk 104 atkvæði og féll úr keppni. 193 ríki sitja á allsherjarþinginu. Fimmtán sitja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, þar af fimm sem eiga þar fast sæti.
Í hópi ríkja Rómönsku Ameríku og Karíbahafsins tryggði Trínidad og Tóbagó sér 181 atkvæði, en Gvæjana fékk eitt atkvæði þrátt fyrir að vera ekki í framboði.
Simbabve, eini frambjóðandinn fyrir sæti Afríkuhópsins, fékk 182 atkvæði.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna: Kirgistan í fyrsta sinn
Hörðust var keppnin í Asíu- og Kyrrahafshópnum. Kirgistan leiddi í fyrstu atkvæðagreiðslunni með 105 atkvæði á móti 85 atkvæðum Filippseyja, áður en stuðningurinn jókst jafnt og þétt í þremur umferðum þar sem kosið var á milli þeirra tveggja, og sigraði að lokum með 142 atkvæðum gegn 49 í fjórðu umferð.
Kosningin markar söguleg tímamót fyrir Kirgistan, sem mun sitja í öryggisráðinu í fyrsta sinn síðan landið gekk í Sameinuðu þjóðirnar árið 1992.
Sendinefndarmenn frá Kirgistan klöppuðu og fögnuðu með öðrum velunnurum úr stjórnmálaheiminum í nokkrar mínútur eftir að niðurstaðan var tilkynnt í hinum gyllta sal allsherjarþingsins.
Hin fjögur nýkjörnu aðildarríkin hafa öll fyrri reynslu af setu í ráðinu: Austurríki og Portúgal hafa setið þrisvar sinnum hvort, Simbabve tvisvar og Trínidad og Tóbagó einu sinni.
