
Ný úttekt á umhverfisafleiðingum sprengingar Nord Stream gasleiðslunnar í Eystrasalti bendir til að meira magn metan hafi verið losað í umhverfið en dæmi eru um. UNEP, Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna samræmdi gerð skýrslunnar.
Alls streymdu 485 þúsund tonn af metani úr leiðslunni þegar hún rofnaði við sprengingar á botni Eystrasalts í september 2022. Jafnvel þá var talið að þetta væri mesti metangasleki af mannavöldum í sögunni. Nýja UNEP skýrslan birtist í janúarhefti Nature.
5 sinnum meira en fyrra met
Nord Stream 1 og 2 eru leiðslur í Eystrasalti sem flytja gas frá Rússlandi til Þýskalands. Ekki er vitað hverjir stóðu að baki því að rjúfa þær með sprengingum.
Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0
Lekinn er fimm sinnum meiri en fyrri metleki, sem gerðist í Bandaríkjunum. Til skamms tíma litið hefur lekinn álíka áhrif á hlýnun jarðar og akstur 8 milljóna bíla á einu ári, að því erfram kemur í skýrslunni.
„Þessi leki var gríðarlega mikill, en hann er aðeins dropi í hafið,” segir Manfredi Caltagirone, yfirmaður alþjóðlega metaneftirlitsins sem UNEP leiðir.
„Þrátt fyrir umfangið jafnast þetta aðeins á við tveggja daga metan-losun olíu og gasiðnaðarins.” Fyrri rannsóknir höfðu metið metanlekann úr Nord Stream frá 75 til 230 þúsund tonnum.
Metan er oft aukaafurð við framleiðslu olíu og gas en veldur um þriðjungi hlýnunar jarðar. Þótt líftími þess í andrúmsloftinu sé aðeins um áratugur, er það 80 sinnum öflugra við að teppa hita en algengasta gróðurhúsalofttegundin koltvísýringur.
Skera þarf niður um þriðjung
Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna (IPCC, Intergovernmental Panel on Climate Change) hefur hvatt ríki heims til að skera losun metans niður um minnsta kosti 30% til að halda lífi í markmiði Parísarsamningsins um loftslagsbreytingbar um að hlýnun jarðar verði ekki meiri en sem nemur 1.5°C miðað við fyrir iðnbyltingu.
U.S. Department of the Treasury/Public domain
Caltagirone bendir á að vegna skamms lífttíma metans hafi það skjótari áhrif á hlýnun jarðar að minnka losun þess.
“Nord Stream sprengingarnar minna á það tækifæri sem felst í því að draga úr losun metans í olíu og gasiðnaðinum.”
