A-Ö Efnisyfirlit

Egyptinn El-Enany nýr forstjóri UNESCO

El-Enany á þingi forn-Egyptalandsfræðinga
El-Enany á þingi forn-Egyptalandsfræðinga. Mynd: CC BY-SA 4.0
Allsherjarþing UNESCO hefur kosið Khaled El-Enany frá Egyptalandi nýjan forstjóra stofnunarinnar.

Khaled Ahmed El-Enany Ali Ezz er fæddur 1971 og er doktor í forn-egypskum fræðum. Hann hefur meðal annars verið fornminjaráðherra Egyptalands. Hann hlaut 172 af 174 greiddum atkvæðum á allsherjarþingi UNESCO í Samarkand í Úsbekistan.

El-Enany tekur við embætti 15.nóvember af Audrey Azoulay frá Frakklandi sem hefur gegnt forstjórastarfinu frá 2017.

Khaled El Enany nýkjörinn forstjóri UNESCO.
Khaled El Enany nýkjörinn forstjóri UNESCO. Mynd: Reem Akef CC BY-SA 4.0
File:

Fyrsti Arabinn

Khaled El-Enany er 12 forstjóri UNESCO, Mennta-, vísinda-, og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hann er fyrsti arabíski forstjórinn og annar Afríkubúinn, sem stýrir UNESCO.

Allsherjarþingið lagði í kosningunni blessun yfir ákvörðun framkvæmdastjórnar stofnunarinnar. El-Enany bar sigurorð af Edouard Firmin Matoko frá Kongó-Brazzaville í atkvæðagreiðslu í framkvæmdastjórninni í síðasta mánuði.