A-Ö Efnisyfirlit

UNFPA: Líf, valkostir og framtíð – Könnun um lýðfræðilega framtíð

Tvö börn er algengasta kjörstærð fjölskyldu.
Tvö börn er algengasta kjörstærð fjölskyldu. Mynd: Tim Mossholder/Unsplash

UNFPA, Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna, gerði ítarlega könnun til að greina væntingar ungs fólks í heiminum. Í úrtakinu voru yfir 108.000 nettengdir einstaklingar á aldrinum 18 til 39 ára í 73 löndum.

Í skýrslunni Líf, valkostir og framtíð er byggt á niðurstöðum könnunarinnar um lýðfræðilega framtíð 2025–2026. UNFPA segir að margt ungt fólk heldur áfram að meta sambönd og foreldrahlutverkið að verðleikum, en skilyrðin til að láta þessar óskir rætast virðast oft vera utan seilingar.

Niðurstöðurnar sýna:

  • Meira en tveir þriðju svarenda vilja giftast eða búa með maka.
  • Tvö börn er algengasta kjörstærð fjölskyldu í fimm af sjö svæðisbundnum hópum.
  • Efnahagslegar og húsnæðislegar hindranir eru algengustu tálmanirnar við að stofna til sambands.
  • Fjárhagslegt öryggi er helsta forsendan fyrir því að stofna til sambands (81%) og foreldrahlutverks (88%).
  • Ungir svarendur telja einnig stöðuga atvinnu (87%) og tilfinningalegan þroska (85%) vera mikilvægar forsendur þess að verða foreldrar.
  • Tveir þriðju eru frekar eða mjög jákvæðir gagnvart framtíðinni
    Tveir þriðju eru frekar eða mjög jákvæðir gagnvart framtíðinni. Mynd: Helena Lopes/Unsplash

    þrátt fyrir áhyggjur af átökum, efnahagslegu óöryggi og ójöfnuði.

Samanburðarhæf innsýn

Þótt gögnin séu vegin eftir aldri, kyni og menntunarstigi eru þessar niðurstöður ekki landsbundnar og ætti ekki að túlka þær sem mat á heildarþýði. Þess í stað veita þær samanburðarhæfa innsýn í skoðanir nettengds ungs fólks sem kannað var á mismunandi svæðum. Gögnin segja okkur hvað þetta unga fólk metur, hvað það hefur áhyggjur af, hvað það telur mikilvægt fyrir sambönd og foreldrahlutverk og hvaða skilyrði það segir að móti valkosti sína.