Gasasvæðið. UNRWA. Sex hundruð og sextíu þúsund börn á Gasasvæðinu setjast ekki á skólabekk í haust eins og flest börn í heiminum. Þótt UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálpin, geti ekki sinnt kennslu eins og venja er, heldur hún áfram starfi sínu á Gasasvæðinu þrátt fyrir fjölmargar hindranir.
Ísraelsher hefur eyðilagt eða skemmt flesta skóla og menntasetur á Gasasvæðinu frá því stríðið blossaði upp í október 2023 í kjölfar árása undir forystu Hamas á Ísrael. Þá hýsa margir skólar fólk sem flúið hefur eyðilögð heimkynni sín.
„Í stað þess að fara á ný í skóla hafa um það bil 660 þúsund stúlkur og drengir á Gasa orðið að gera sér að góðu að krafsa í rústunum, örvingluð, svöng, andlega sködduð en fyrst og fremst sorgmædd“, skrifaði Lazzarini á samskiptamiðilinn X 1.september.
Annað haustið án skóla
Börnin á Gasa fara ekki í skólann í haust annað árið í röð. UNRWAA neyddist til að loka öllum skólum sínum þegar átökin blossuðu upp í október 2023. Tugum þúsunda barna var hins vegar kennt í bráðabirgðahúsnæði eða á netinu. Þetta nær þó skammt, ekki síst vegna rafmagns- og netleysis og uppflosnunar íbúa.
Menntun Palestínumanna á Gasassvæðinu, sem annars staðar, hefur verið eitt helsta verkefni UNRWA undanfarna árutugi. Fyrir stríð naut helmingur barnanna á Gasa kennslu í skólum UNRWA. Ljóst er að þau munu eiga erfitt uppdráttar með að vinna upp þann tíma sem þau hafa misst úr í kennslu. UNRWA varar við því að börn verði útsett í ríkari mæli fyrir misnotkun, hvort heldur sem er barnavinnu, snemmbær hjónabönd eða þvinguð til þátttöku í vígasveitum.
„Það er tifandi tímasprengja í næsta nágrenni Ísraels. Það er öllum til góðs að börnin setjist á skólabekk að nýju, þar á meðal í þágu öryggis Ísraels og stöðugleika,“ segir á heimasíðu UNRWA.
Að sá fræjum meira haturs og ofbeldis
„Gasasvæðið er í rúst og sama máli gegnir um menntakerfið,“ benti Lazzarini á í færslu inni á X. „Því lengur sem börnin eru utan skóla felmtri slegin, því meiri líkur eru á að þau verði týnd kynslóð, og að sáð verði fræjum enn meira haturs og ofbeldis.“
Auk þess að glíma við afleiðingar átaka, stendur UNRWA frammi fyrir miklum hindrunum. Bann við starfsemi UNRWA tók gildi í ísrael í janúar 2025.
UNRWA starfar áfram á Gasa
Þrátt fyrir lagasetninguna heldur starfsemi UNRWA áfram á Gasa.
„Þrátt fyrir miklar áskoranir er UNRWA enn til staðar á Gasasvæðinu og starfsemin heldur áfram,“ sagði Juliette Touma samskiptastjóri UNRWA í samtali við vefsíðu UNRIC.
„UNRWA hefur rúmlega tíu þúsund starfsmenn á Gasa, þar á meðal fimmtán hundruð sem starfa í heilbrigðiskerfinu. Þessa stundina hefur UNRWA skotið skjólshúsi yfir rúmlega eitt hundrað þúsund manns um allt Gasasvæðið. Og árið 2025 höfum við útvegað 1.3 milljónum manna vatn og salernis- og hreinlætisaðstöðu.”
Þótt stríðið hafi haft verulega áhrif á menntun á Gasa, heldur starf UNRWA fyrir börn áfram.
„Við höfum náð til meir en hálfrar milljónar barna með sálfræðiþjónustu okkar frá því stríðið hófst 7.október 2023,“ sagði Touma.
Fjárhagserfiðleikar
Sumir fjárveitendur hafa hætt stuðningi við UNRWA og munar mest um Bandaríkin. Stofnunin hefur ekki heldur farið varhluta af almennum niðurskurði á framlögum til alþjóðastofnana, mannúðaraðstoðar og hjálparstarfs.
Svíþjóð hætti öllum stuðningi við UNRWA í lok desember 2024 eftir að ísraelsstjórn bannaði starfsemi stofnunarinnar. Svíar sögðu bannið torvelda UNRWA að koma aðstoð til Palestínumanna og kváðust því leita annarra leiða.
„Þetta er sorgardagur fyrir palestínska flóttamenn og fjölþjóðakerfið þar sem Svíþjóð hefur verið í fylkingarbrjósti,“ sagði Lazzarini forstjóri UNRWA í yfirlýsingu.
Hin Norðurlöndin fjögur; Danmörk, Finnland, Ísland og Noregur hafa haldið áfram stuðningi við UNRWA. Þau stöðvuðu þó öll fjárstuðning þar til rannsókn hafði farið fram á ásökunum Ísraela.
Ásakanir Ísraela – rannsókn
Ísrael réttlætti bannið með því að nokkrir starfsmenn UNRWA hefðu gerst sekir um þátttöku í hryðjverkaárásunum 7.október 2023.
Óháð nefnd undir forystu Catherine Colonna fyrrverandi utanríkisráðherra Frakklands var skipuð og innanhúsrannsókn óháðrar stofnunar innan Sameinuðu þjóðanna til að fara í saumana á ásökununum hafin.
Í svokallaðri Colonna-skýrslu var komist að þeirri niðurstöðu að UNRWA hefði starfað í samræmi við þau grundvallarsjónarmið um hlutleysi sem krafist er af mannúðarstarfi.
Hin óháða Innri endurskoðun Sameinuðu þjóðanna (OIOS) rannsakaði einnig málið. Niðurstaða hennar var að níu starfsmenn UNRWA kunni að hafa átt þátt í árásunum. Þeim var sagt upp.
„Hins vegar, gat OIOS ekki sannreynt upp á eigin spýtur sannleiksgildi meintrar þátttöku starfsmannanna, því Ísraelar hafa ekki afhent gögn til stuðnings ásökununum sínum, „ sagði Farhan Haq vara-talsmaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Ekki nægar vísbendingar voru um meinta þátttöku annara tíu starfsmanna.
Um UNRWA
UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna var stofnuð árið 1949. Hlutverk hennar er að sinna mannúðaraðstoð og vernda flóttamenn frá Palestínu og niðja þeirra. Hún starfar í Jórdaníu, Líbanon, Sýrlandi, á vesturakka Jórdanar og Gasasvæðinu. UNRWA sinnir grundvallarþjónutu á borð við menntun, heilsugæslu og félagslegri þjónustu. Hún er fjármögnuð að langmestu leyti með með valkvæðum fjárframlögum aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna.
Sjá ýmisleg álitamál um UNRWA og svör hér.
Sjá síðustu skýrslu UNRWA um ástandið á Gasa og víða hér.
Þeir sem vilja styðja mannúðarstarf á Gasa fjárhagslega geta gert það með því að smella hér.
