A-Ö Efnisyfirlit

Verndun viðkvæmrar líffræðilegrar fjölbreytni jarðar í brennidepli á fundi í Armeníu

Páfagaukar eru algengastir á hitabeltis og heittempruðum svæðum. Mynd: Unsplash/Roberto Nickson
Páfagaukar eru algengastir á hitabeltis og heittempruðum svæðum. Mynd: Unsplash/Roberto Nickson

COP17. Líffræðileg fjölbreytni. Tap líffræðilegrar fjölbreytni heldur áfram að umturna lífi milljarða manna sem eiga framtíðarvelsæld sína undir því að ríki grípi tafarlaust til aðgerða til að vernda jörðina, sagði æðsti embættismaður Sameinuðu þjóðanna sem stýrir viðræðum á ráðstefnu samtakanna um líffræðilega fjölbreytni í Jerevan á mánudag.

Markmið viðræðnanna í höfuðborg Armeníu 19.-30.október er að meta árangurinn hingað til og byggja á samþykktri áætlun um verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Þar er átt við svonefndan Kunming-Montreal-rammasamning um líffræðilega fjölbreytni, sem samþykktur var fyrir fjórum árum. Fundurinn í Jerevan er kallaður COP17 og er þar vísað til þess að þetta er 17.þingið um „Samninginn um líffræðilega fjölbreytni“ en fundað er  annað hvert ár

„Árið 2022 skuldbundu 196 ríki sig. En við berum öll ábyrgð gagnvart hvert öðru og gagnvart komandi kynslóðum. Það sem gerist hér í Jerevan skiptir máli. Milljarðar manna, sem búa við að líf þeirra umturnast vegna áhrifa af tapi líffræðilegrar fjölbreytni, eiga allt undir því að árangur náist hér á næstu tveimur vikum,“ sagði Astrid Schomaker, framkvæmdastjóri samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Á síðustu tveimur áratugum hefur fjallagórillum í Bwindi Impenetrable-þjóðgarðinum í Úganda fjölgað jafnt og þétt í meira en 400. Mynd: UNEP/Kibuuka Mukisa
Á síðustu tveimur áratugum hefur fjallagórillum í Bwindi Impenetrable-þjóðgarðinum í Úganda fjölgað jafnt og þétt í meira en 400. Mynd: UNEP/Kibuuka Mukisa

COP17 Líffræðileg fjöðlbreytni: 30 fyrir 30

Meðal markmiða samningsins er að takast á við helstu orsakir taps líffræðilegrar fjölbreytni, þar á meðal breytta landnotkun og nýtingu hafsins, ósjálfbæra nýtingu tegunda, loftslagsbreytingar, mengun og ágengar tegundir.

Þekktasta markmið Kunming-Montreal-rammans er ef til vill „30 fyrir 30“: að vernda 30 prósent lands og hafs fyrir árið 2030, sem er jafnframt lokafrestur til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Til að svo megi verða þurfa landsáætlanir að samræmast alþjóðlegum markmiðum, fjármögnun að mæta núverandi þörfum og neysla og framleiðsla að vera í samræmi við „takmarkaðar auðlindir jarðarinnar“, sagði Schomaker.

Hvers vegna skipta þessar viðræður máli?

Meðal stóru málanna sem ríkisstjórnir munu glíma við á COP17  í Jerevan eru:

  • Staðan tekin:Ríki munu gera allra fyrstu heildarúttektina á sameiginlegum árangri samkvæmt rammanum með því að leggja fram landsskýrslur sínar og uppfærðar landsáætlanir og aðgerðaáætlanir um líffræðilega fjölbreytni. Þar mun koma í ljós hvað hefur áunnist frá 2022 og hvar hraðari aðgerða er þörf.
  • Bilið í framkvæmd brúað: Spurningin er hvernig breyta megi landsmarkmiðum og áætlunum í mælanlegan árangur á vettvangi.
  • Fjármagn fundið: Ramminn kveður á um að minnsta kosti 200 milljarða dala árlega fyrir árið 2030, þar af að minnsta kosti 30 milljarða dala í alþjóðlega fjármögnun til líffræðilegrar fjölbreytni, að sögn Hovhannisyan, sendiherra Armeníu hjá Sameinuðu þjóðunum.
  • Cali-sjóðurinn virkjaður: Samið var um þetta alþjóðlega fjármögnunarkerfi, sem komið var á fót samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, á COP16 í Cali í Kólumbíu. Viðræðunum í Jerevan er ætlað að þoka áfram hagnýtu fyrirkomulagi sjóðsins, sem var hannaður til að safna fé frá fyrirtækjum sem nota stafræn erfðafræðileg gögn og endurúthluta því til verndar líffræðilegri fjölbreytni og frumbyggjum.
  • Fylgst með árangri: Þörf er á betri vöktun, gögnum, getu og samstarfi svo ríki geti mælt hvort skuldbindingar skili í raun árangri.
  • Hagkerfinu breytt: Á sumum þeirra sviða sem lengst eru á eftir þarf aðgerðir utan umhverfisráðuneyta, meðal annars varðandi fjármál, atvinnulíf, sjálfbæra neyslu og skaðlega hvata.
  • Fundurinn fylgir í kjölfar viðvarana António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í Jerevan á föstudag um að yfir ein milljón tegunda sé í útrýmingarhættu.

Stríð gegn náttúrunni

Í ákalli sínu um að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“ hvatti aðalframkvæmdastjórinn ríkisstjórnir, atvinnulíf og samfélög til að herða róðurinn við að vernda líffræðilega fjölbreytni fyrir komandi kynslóðir.

„Á hverjum degi sagar mannkynið enn eina greinina af lífsins tré. Loftslagsringulreið, ágengar tegundir, ofbeit og ofveiði, óhóflegur áburður, skordýraeitur, plast og þungmálmar – allt þetta og fleira knýr áfram þreföldu hnattrænu kreppuna: mengun, tap líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsringulreið,“ sagði hann.

Aðalframkvæmdastjórinn varaði við því að heimurinn færist sífellt nær því að verða óbyggilegur. En hann benti einnig á alþjóðlegar aðgerðir í þágu líffræðilegrar fjölbreytni sem samið var um í Kunming-Montreal-rammanum.

Ramminn hefði blásið til aðgerða um allan heim, fullyrti Guterres, og benti á að frá 2022 hefðu 1,3 milljónir ferkílómetra lands og sex milljónir ferkílómetra hafs til viðbótar hlotið formlega vernd.

En „framfarirnar eru ójafnar og allt of hægar“ og ríki eiga á hættu að ná „hvergi nærri“ markmiðinu um að vernda 30 prósent lands og hafs heimsins fyrir árið 2030, sagði aðalframkvæmdastjórinn.

Myndatexti: Á síðustu tveimur áratugum hefur fjallagórillum í Bwindi Impenetrable-þjóðgarðinum í Úganda fjölgað jafnt og þétt í meira en 400. Mynd: UNEP/Kibuuka Mukisa

Páfagaukar eru algengastir á hitabeltis og heittempruðum svæðum. Mynd: Unsplash/Roberto Nickson