COP31 lauk á sunnudag án loftslagssáttmála eftir að samningamönnum tókst ekki að brúa ágreining um jarðefnaeldsneyti. Þar með lauk tveggja vikna viðræðum og tveggja daga framlengingu. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti niðurstöðunni sem „miklum vonbrigðum.”
Ágreiningur um orðalag varðandi jarðefnaeldsneyti reyndist helsta hindrunin í vegi samstöðu. Þar sem einhugs er krafist varð það til þess að COP31 lauk án endanlegs loftslagssáttmála.
„Þeir sem hagnast á eyðileggingu plánetunnar okkar mega aldrei ráða skilmálum baráttunnar fyrir björgun hennar,” sagði Guterres í yfirlýsingu. Mynd: UNFCCC/Kiara Worth
Nokkur ríki mótmæltu lokatextanum formlega. Þau sögðu hann veikja fyrri skuldbindingar og ekki endurspegla hversu brýn loftslagsváin er.
António Guterres kallaði niðurstöðuna bakslag. Hann lagði áherslu á að „vísindin væru eftir sem áður ótvíræð“ og hvatti til hraðari aðgerða í loftslagsmálum.
Jarðefnaeldsneyti knýr hlýnun jarðar
„Það er hugsanlega engin samstaða í samningaherberginu. En vísindin eru ótvíræð,“ sagði aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í yfirlýsingu.
Guterres hélt því fram að jarðefnaeldsneyti væri enn helsti drifkraftur hlýnunar jarðar. Hann varaði við tilraunum til að tefja umskiptin yfir í hreinni orku.
„Lærdómurinn af COP31 er skýr: heimurinn verður að gera miklu meira til að takast á við loftslagsvána – og hann verður að gera það núna,“ sagði Guterres.
„Þeir sem hagnast á eyðileggingu plánetunnar okkar mega aldrei ráða skilmálum baráttunnar fyrir björgun hennar.“
Aðalframkvæmdastjórinn benti á að ríkisstjórnir hefðu þegar samþykkt á COP28 í Dúbaí að hverfa frá jarðefnaeldsneyti. Ítrekaði hann að nú yrði að leggja áherslu á að hraða og fjármagna þau umskipti.
Dagar pattstöðu
Hinar árangurslausu viðræður komu í kjölfar margra daga pattstöðu um jarðefnaeldsneyti, þar sem samningamönnum tókst ekki að brúa bilið. Þar tókust á tvær fylkingar. Annars vegar var bandalag ríkja sem eru berskjölduð fyrir loftslagsbreytingum og ríki em þrýstu á um sterkari skuldbindingu um að hverfa frá kolum, olíu og gasi. Hins vegar voru ríki sem vildu vernda hagkerfi sem eru mjög háð útflutningi jarðefnaeldsneytis.
Evrópusambandið sagðist ekki geta samþykkt texta sem sleppti allri tilvísun í jarðefnaeldsneyti eða umskipti frá því. Lýsti ESB slíkri úrfellingu sem „óforsvaranlegri“.
Lærdómur fyrir COP32
Í ávarpi sínu á lokaþinginu sagði Simon Stiell, framkvæmdastjóri Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, gremju margra fulltrúa skiljanlega eftir að ríkisstjórnum tókst ekki að brúa ágreining um helstu pólitísku ákvarðanir ráðstefnunnar.
„Heimurinn hefur ekki efni á að þetta endurtaki sig,“ sagði hann. Hvatti hann ríki til að draga lærdóm af Antalya.
Stiell benti engu að síður á árangur sem náðst hefði á ráðstefnunni. Benti hann á samkomulag um réttlát umskipti. Einnig röð verkefna undir aðgerðaáætlun COP31 sem miða að því að hraða rafvæðingu, auka viðnámsþrótt og fjárfestingu. Hann benti á að loftslagsferlið hefði áður staðið af sér bakslög. Stiel sagði að COP32 yrði að byggja á fyrri árangri í stað þess að „stíga skref aftur á bak“.
