Einhverfa. Meðganga. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hún leggur áherslu á að það liggi ekki fyrir neinar vísindalegar sannanir fyrir hugsanlegum tengslum inntöku paracetamol á meðgöngu og einhverfu barna.
Þótt jafnt vitund um og rannsóknar á einhverfu hafi aukist á liðnum árum hefur ekki tekist að greina nákvæmlega orsök einhverfu. Líkur eru á að orsakavaldar séu fleiri en einn.

WHO segir einnig að umfangsmikil gögn, sem liggi fyrir, bendi ekki til að bólusetningar í æsku valdi einhverfu. Margar hágæðarannsóknir í fjölmörgum löndum benda allar til hins sama. Þær rtannsóknir sem virtust benda til tengsla á milli bólusetninga og einhverfu voru meingallaðar og niðurstöður þeirra hafa verið afskrifaðar.
1 af 27 á einhverfurófi
Talið er að 62 milljón manna séu á einhverfu-rófi í heiminum í dag eða einn af hverjum 27. Einhverfa er hins vegar afar margbreytileg og því er oft talað um einhverfuróf eða einhverfurófsröskun. Hún tengist óvenjulegum taugaþroska og birtist í skynjun á okkur sjálfum og veröldinni, samskiptum og tengslamyndun við fólk og umhverfi, segir á heimasíðu Einhverfusamtakanna.
Einhverfir á Íslandi á aldrinum 18-70 ára eru taldir vera að minnsta kosti um 7 þúsund samkvæmt opinberri skýrslu um geðheilbrigðisþjónustu fyrir einhverfa einstaklinga sem gefin var út í nóvember 2024
