Tóbaksnotkun kvenna á Evrópusvæði WHO minnkar helmingi hægar en tóbaksnotkun karla. Meðal unglinga á aldrinum 13–15 ára er notkun rafsígarettna algengari hjá stúlkum en drengjum, samkvæmt nýrri skýrslu Evrópuskrifstofu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO/Europe).
WHO hefur sett löndum það markmið að minnka um 30% tíðni tóbaksnotkunar (bæði reyktóbaks og reyklauss tóbaks) meðal fullorðinna fyrir árið 2025, miðað við árið 2010 sem viðmiðunarár.
Ekki eru enn öll kurl komin til grafar um tímabilið. Samkvæmt nýju skýrslunni „Þróun tíðni tóbaksnotkunar á Evrópusvæði WHO“ eru Norðurlöndin fimm þó meðal þeirra ellefu landa á svæðinu sem eru á réttri leið með að ná markmiðinu um 30% minnkun frá 2010..
- Ísland úr 18,6% í 8,7% (2023) (#2)
- Noregur úr 26,8% í 12,3% (2023) (#3)
- Danmörk úr 26,4% í 12,3% (2023) (#5)
- Svíþjóð úr 33,9% í 19,5% (2023) (#7)
- Finnland úr 30,3% í 20,9% (2022) (#8)
Tóbaksnotkun kvenna
Á Evrópusvæði WHO er tóbaksnotkun kvenna og stúlkna mikið áhyggjuefni. Ólíkt öðrum svæðum WHO minnkar tóbaksnotkun kvenna í Evrópu sérstaklega hægt. Í 15 löndum svæðisins fer tóbaksnotkun fullorðinna kvenna vaxandi.
„Evrópusvæðinu miðar ekki nægilega vel í að draga úr tóbaksnotkun bæði karla og kvenna. En konur og stúlkur sitja sérstaklega langt eftir,“ sagði Kristina Mauer-Stender, svæðisráðgjafi í tóbaksvörnum hjá WHO/Europe. „Unglingsstúlkur reykja nú og veipa jafn mikið og drengir, eða meira. Ekkert af þessu er óumflýjanlegt.“
Spáð var að tóbaksnotkun karla myndi minnka um 23% á milli 2010 og 2025, úr 39,3% í 30,3%. Notkun kvenna átti aðeins að minnka um 12%, úr 19,6% í 17,3%. Evrópa er eina svæði WHO þar sem konur eru ekki á réttri leið með að ná 30% lækkun. Á öllum öðrum svæðum er spáð að tóbaksnotkun kvenna fari niður fyrir 10%.
Um 63 milljónir kvenna á svæðinu nota tóbak. Með núverandi hraða myndu konur ekki ná 30% lækkun frá viðmiðunarárinu 2010 fyrr en árið 2054. Karlar eru á réttri leið með að ná því fyrir 2031.
Staðan meðal unglingsstúlkna er ekki síður áhyggjuefni: í 29 löndum nota stúlkur tóbak jafn mikið eða meira en drengir og í 35 löndum sést sama mynstur í notkun rafsígarettna.
Ákall um aðgerðir
WHO/Europe hvetur stjórnvöld um allt svæðið til að innleiða rammasamning WHO um tóbaksvarnir (FCTC) að fullu og til að:
- Lækka tóbaksskatta upp í þau mörk sem WHO mælir meðþ
- Framfylgja víðtækum lögum um reyklaus svæði og algeru banni við auglýsingum, kynningu og kostun tóbaks.
- Setja reglur um rafsígarettur og aðrar nýjar nikótín- og tóbaksvörur til að vernda börn og unglinga.
- Safna og birta gögn um tóbaksnotkun eftir kyni og aldri svo hægt sé að sjá hverjir sitja eftir.
- Vernda stefnu í tóbaksvörnum gegn afskiptum tóbaksiðnaðarins
Ísland:Aðeins fleiri karlar en konur
Talið er að 29 þúsund manns á Íslandi noti tóbak og aðeins fleiri karlar en konur í þeim hóp, eða 15 þúsund annars vegar og 14 þúsund hins vegar.
Á Íslandi hefur tóbaksnotkun minnkað hratt og stöðugt úr 31,1% árið 2000 og spáð er að hún verði komin niður í 6,8% árið 2030, sem fylgir náið þróuninni niður á við í Norður-Evrópu. Spáð er að áætluð tíðni verði áfram talsvert undir meðaltali Evrópusvæðis WHO árið 2030.
Tíðni sígarettureykinga meðal 15 ára unglinga er svipuð hjá drengjum og stúlkum, eða 4,0% og 3,0%. Notkun rafsígarettna er algengari en sígarettureykingar og stúlkur nota rafsígarettur meira (16,0%) en drengir (11,0%).
