Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) kynnti í dag á blaðamannafundi í Reykjavík nýja þver-evrópska nefnd til að bregðast við heilbrigðisvá af völdum loftslagsbreytinga. Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra er formaður nefndarinnar.
Skammstöfunin PECHH (Pan-European Commission on Climate and Health) er notuð um nefndina. Ellefu nefndarmenn víðsvegar að af Evrópusvæði WHO, sem nær til ýmissa fyrrverandi Sovétlýðvelda, sitja í nefndinni.
„Það er kominn tími til að viðurkenna óvéfengjanlegan sannleika: loftslagsváin er heilbrigðisvá,“ sagði Hans P.Kluge yfirmaður Evrópuskrifstofu WHO á blaðamannafundi í Reykjavík.
„Hún er nú þegar farin að kosta mannslíf og án brýnna aðgerða mun ástandið versna til muna.“
Samstarf við aðra heimshluta
Auk þess að nýta sér þekkingu sérfræðinga og miðla henni, mun nefndin eiga samstarf við fulltrúa annarra heimshluta í því skyni að finna sameiginlegar lausnir. Sérstaklega á þetta við um smá- og eyríki, sem oft verða harðast fyrir barðinu á loftslagsvánni.
„Heilbrigðiskerfi okkar eru nú þegar undir miklu álagi, en þau geta líka verið hluti af lausninni,“ sagði Dr. Kluge. „Þess vegna höfum skipað þver-evrópska nefnd undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. Hún mun koma með lausnir heilsugeirans, sem eru framkvæmanlegar og lítt kostnaðarsamar, til þess að takast á við loftslagsbreytingar í því skyni að bæta heilsu en lækka á sama tíma kostnað.“
Sjá nánar hér.
