Ískyggilega hátt hitastig hefur mælst á jörðinni í ár og útlit fyrir að 2025 verði annað eða þriðja heitasta ár frá því mælingar hófust. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar (WMO). Hún er gefin út í tilefni af Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP30) í Belém í Brasilíu.
Síðustu 11 frá 2015 til 2025 eru 11 hlýjustu ár á þeim 176 árum sem mælingar ná til. Síðustu þrjú ár eru heitustu þrjú ár í sögunni. Meðalhiti við yfirborð frá janúar til ágúst 2025 var 1.42 °C ± 0.12 °C yfir meðalhita fyrir iðnbyltingu samkvæmt skýrslu WMO.

Hafís á Norðurslóðum aldrei minni
Samþjöppun gróðurhúsalofttegunda, sem fanga hita í lofti og á láði, náði hámarki 2024 og hélt áfram að aukast 2025. Norðurskautshafís, eftir vetrarfrost, var minni en nokkru sinni fyrr. Suðurskaustshafísinn var vel fyrir neðan meðaltal allt árið. Til langs tíma litið hélt hækkun yfirborðs sjávar áfram þrátt fyrir minniháttar og tímabundna náttúrulega sveiflu, að því er fram kemur í skýrslunni.
Veður- og loftslagstengdar hamfarir; allt frá hamfara-rigningum til flóða og ógnarhita til gróðurelda, höfðu mikil áhrif á líf fólks, lífsviðurværi og fæðukerfi. Slíkt stuðlaði að því að fólk flosnaði upp í mörgum heimshlutum, grafið var undan sjálfbærri þróun og hagvexti.
1.5 °C mögulegt fyrir aldarlok
„Þetta fordæmalausa hitaskeið, auk metsamanþjöppunar gróðurhúsalofttegunda á síðasta ári, útilokar í raun að hægt sé að halda hlýnun jarðar innan 1.5 °C á næstu árum,“ segir Celeste Saulo forstjóri WMO. „Að minnsta kosti er líklegt að hlýnunin fari yfir það mark að minnsta kosti tímabundið. Hins vegar segja vísindin okkur líka að enn er fyllilega kleift og þýðingarmikið að ná hlýnuninni undir 1.5 °C fyrir aldarlok,”
WMO gaf yfirlitsskýrslu sína um ástand loftslagsins út fyrir leiðtogafund Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP30) í Belém í Brasilíu. Hún byggir á vísindalegum niðurstöðum og er ætlað að vera ráðgefandi fyrir samningamenn á COP30.
