Sýrland. Flóttamenn.
Um 400 þúsund landflótta Sýrlendingar hafa snúið heim eftir hrun Assad-stjórnarinnar í Sýrlandi í desember síðastliðinum. Þá hefur um ein milljón manna á flótta innanlands snúið aftur til síns heima. Því er spáð að hálf önnur milljón flóttamanna utan landsteinanna snúi heim í ár og tvær milljónir uppflosnaðs fólks innanlands.
Niðurskurður fjárveitinga til mannúðar- og flóttamannamála á alþjóðlegum vettvangi, gæti hins vegar sett strik í reikninginn.
„Það er hætta á því að ef ekki tekst að tryggja fjárveitingar muni þær 1.5 milljón, sem vonast er til að snúi heim, ekki gera það. Jafnframt að þeir sem snúi heim eigi ekki annan kost en að yfirgefa heimaland sitt á ný,“ segir talskona Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) Céline Schmitt í Damaskus.
Tölurnar eru frá UNHCR sem hafa hvatt til aukins stuðnings við heimkomna sýrlenska flóttamenn jafnvel þótt víðast hvar sé verið að skera niður fjárveitingar.
„Frá falli Assad-stjórnarinnar hefur sá möguleiki opnast fyrir flóttamenn að snúa heim og hefja nýtt líf,“ segir Schmitt.
„Með því að fjárfesta í aðstoð og endurreisn getum við skapað tækifæri og gefið Sýrlendingum von.“
Sýrland: Nýta ber tækifærið
Schmitt segir að nú þegar skólaárinu sé að ljúka, verði sumarið þýðingarmikill tími fyrir þá sem eru fúsir að snúa heim, og augnablik og tækifæri sem beri að nýta.
Sýrlenskir flóttamenn þurfa á hjálp að halda við að fá þak yfir höfuðið, lífsviðurværi, vernd og lagalega aðstoð til þess að heimflutningur skili árangri og verði varanlegur.
Fráfarandi vara-mannúðarstjórnandi Sameinuðu þjóðanna fyrir Sýrland, David Carden, segir að nú sé rétt tíminn til að fjárfesta í Sýrlandi og hjálpa fólki að snúa heim.
Nýtt Sýrland
„Við höfum nýtt Sýrland, þar sem von ríkir og tækifæri gefast,“ segir Carden
Hann varar hins vegar við því að þótt „sverð hafi verið slíðruð í mörgum landshlutum, er mannúðarkreppunni í Sýrlandi hvergi nærri lokið.“
Nærri 16.7 milljónir manna í Sýrlandi eða um 90% íbúanna, þurfa á einhvers konar mannúðaraðstoð að halda. Enn eru 7.4 milljónir flóttamenn á vergangi innanlands.
Pólitísk valdaumskipti eru í landinu eftir að Assad-stjórnin var rekin frá völdum í desember síðastliðnum eftir nærri 14 ára borgarastríð. Að auki urðu mannskæðir jarðskjálftar í Sýrlandi og Tyrklandi í febrúar 2023.
Aðeins tekist að afla lítils hluta nauðsynlegs fjár
Í janúar hleypti UNHCR áætlun af stokkunum, sem miðar að því að hjálpa 1.5 milljón sýrlenskra flóttamnna erlendis, og tveimur milljónum innanlands, að snúa heim í ár. Kostnaður hljóðar upp á 575 milljónir Bandaríkjadala en aðeins hefur tekist að afla 71 milljónar dala.
„Þessi niðurskurður kemur niður á starfi okkar, enda hefur orðið að fækka starfsliði um 30% Í Sýrlandi. Slíkt hefur veruleg áhrif á getu okkar til að veita þýðingarmikinn stuðning,“ segir Schmitt hjá UNHCR.
Flóttamannahjálpin heldur áfram
Vegna fjárskorts verður UNHCR að stöðva lífsnauðsynlegt starf. Flóttamannahjálpin styður 122 samfélagsmiðstöðvar og verður 44 þeirra lokað fyrir sumarið. Miðstöðvarnar veita mikilvæga aðstoð á sviði geðheilsu, lagalegrar aðstoðar, kynbundins ofbeldis og jarðsprengjuvarna.
„Miðstöðvarnar stuðla einnig að félagslegri einingu og hefur lokun þeirra áhrif á heimkomna flóttamenn og samfélög þeirra auk samstarfsaðila UNHCR,“ segir Schmitt.
Hún segir að þrátt fyrir þessa erfiðleika muni Flóttamannahjálpin halda áfram starfi sínu í Sýrlandi og hvetur hún fjárveitendur til að „herða sig þrátt fyrir efnahagslega erfiðleika um allan heim.“
