24. júlí 2012. UNiTE, herferð framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til höfuðs ofbeldi gegn konum og UN Women hafa tekið höndum saman og skora á alla að klæðast appelsínugulu 25. hvers mánaðar til að styðja þennan málstað. 25. nóvember er alþjóðadagur helgaður baráttunni á hendur ofbeldi gegn konum, en UNiTE herferðin hefur nú lýst 25. hvers mánaðar Appelsínugula daginn – baráttudag gegn þessum vágesti.
Appelsínugulir dagar verða haldnir fram að 57. þingi Ráðsins um stöðu kvenna í mars á næsta ári.
UNiTE herferðin mun einnig kynna til sögunnar borða sem á að vera tákn um þessa baráttu.
Hvað getið þið gert?
1. Klæðist appelsínugulu 25. júlí
2. Skorað á aðra að vera í appelsínugulu, birta áskoranir á facebook og tweet
3. Nota og deila ljósmyndina af UNiTE borðanum
4. Breyta forsíðumyndinni á Facebook og setja í staðinn mynd af Say No – UniTE facebook-síðunni til að styðja Appelsínugula daginn.
Síðast en ekki síst þá hvetja UN Women á Íslandi landsmenn til að birta myndir af sér í appelsínugulu á Fésbókarsíðu UN Women á Íslandi https://www.facebook.com/unwomen.nc.iceland