Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Dana hefur tilkynnt að Danmörk hafi greitt alla fjárveitingu sína til Palestínu-flóttamannahjálparinnar, UNRWA, í heild snemma í ár. Upphæðin er andvirði rúmlega hundrað og fjögurra milljóna danskra króna eða fjórtán milljóna evra eða tveggja miilljarða íslenskra króna.
„UNRWA er ómissandi líflína fyrir Palestínumenn á Gasa og í heimshlutanum,” skrifaði danski utanríkisráðherrann á samfélagsmiðlinum X.
„Áframhaldandi stuðningur er þýðingarmikill, ekki síst vegna þess að stofnunin sætir miklum þrýstingi. Ég hvet aðra til að fara að dæmi okkar.“

Árið 2023 undirrituðu Danmörk og Palestínu-flóttamannahjálpin fjölára samning fyrir tímabilið 2023 til 2027. Samningurinn gerir ráð fyrir um 105 miilljóna fjárveitingum árlega til UNRWA og 525 milljóna danskra króna stuðning á samningstímanum eða um tíu milljarða íslenskra króna.
UNRWA: nýlegur norskur samningur
Fyrr á árinu undirrituðu Norðmenn tveggja ára samning við flóttamannahjálpina. Samkvæmt honum greiða Norðmenn 107 milljónir norskra króna árlega til hennar 2026–2027. Það er andvirði 9.3 milljarða evra eða nærri 1.36 milljarða íslenskra króna.

