
Norska stjórnin hefur undirritað nýjan tveggja ára samnning við Palestínu-flóttamannahjálpina (UNRWA). Samkvæmt honum mun Noregur greiða UNRWA 175 milljónir norskra króna á ári á samningstímabilinu 2026–2027. Þetta er andvirði nærri 2.2 milljarða íslenskra króna.
Åsmund Aukrust ráðherra þróunarsamvinu og Andreas Motzfeldt Kravik ráðuneytisstjóri undirrituðu af hálfu Norðmanna en forstjórinn Philippe Lazzarini af hálfu UNRWA. Með samningnum ítrekar Noregur öflugan, langtíma stuðning við Palestínu-flóttamannahjálpina. Að auki hafa Norðmenn gert samkomulag við stofnunina um 100 milljóna norskra króna framlag til mannúðarmála árið 2026. Þetta er andvirði rúmlega 1.2 milljarða íslenskra króna. Samtals nema framlög Noregs 3.4 milljörðum íslenskra króna í ár auk 2.2 milljarða næsta ár.

Staðfastur stuðningur
„Palestínskir flóttamenn glíma við dramatískar aðstæður vegna stríðsástands, átaka og spennu í þeirra heimshluta,“ sagði Åsmund Aukrust ráðherra þróunarsamvinnu. „UNRWA er gríðarlega þýðingarmikil í því að tryggja að milljónir palestínskra flóttamanna njóti grundvallarþjónustu á borð við menntun, heilbrigðiskerfi og neyðaraðstoð. Noregur er staðfastur stuðningsmaður palestínskra flóttamanna og starfs stofnunarinnar.”
Palestínu-flóttamannahjálpin sinnir grundvallarþjónustu og mannúðaraðstoð við um sex milljónir palestínskra flóttamanna í Palestínu, Líbanon, Sýrlandi og Jórdaníu. Stofnunin er hornsteinn mannúðarstarfs í þessum heimshlluta. Starfsfólk UNRWA og staðþekking þess eru þýðingarmikil í lífsnauðsynlegu mannúðarstarfi á Gasasvæðinu. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa nýlega greitt atkvæði með miklum meirihluta að endurnýja umboð UNRWA.

Samstaða með palestínskum flóttamönnum
„UNRWA stendur frammi fyrir miklum áskorunum,” segir Andreas Motzfeldt Kravik ráðuneytisstjóri. „Samningurinn talar sínu máli um samstöðu okkar með palestínskum flóttamönnum og stuðning okkar við ákvörðun Sameinuðu þjóðanna um að endurnýja umboð UNRWA. Það er mikilvægt jafnt fyrir einstakling og stöðugleika í Mið-Austurlöndum að UNRWA hafi nægilegt fjármagn til að hrinda umboði sínu í framkvæmd.“
UNRWA var komið á laggirnar af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1949. Frá þeim tíma hefur það sinnt grundvallarþjónstu á borð við menntun, heilsugæslu, húsaskjóli og neyðaraðstoð fyrir palestínska flóttamenn í Palestínu, Jórdaníu, Sýrlandi og Líbanon. Noregur hefur í mörg ár verið ein styrkasta stoð UNRWA.
(Heimild: regeringen.no)
