Dansað fyrir réttlæti

0
459

milljarður

7.febrúar 2014. UN Women á Íslandi tekur þátt í átakinu Milljarður rís og stefnir að því að 3 þúsund manns dansi fyrir réttlæti 14. Febrúar.
Þennan dag á síðasta ári, 2013, kom saman einn milljarður manna í 207 löndum og dansaði í tilefni af Milljarður rís. Íslendingar létu sitt ekki eftir liggja og 2100 menn, konur og börn á öllum aldri komu saman í Hörpu og dönsuðu af lífi og sál og tóku þátt í femínískri flóðbylgju og létu jörðina hristast með samtakamætti sínum.

Í ár ætlar UN Women í samstarfi við tónlistarhátíðina Sónar og Lunchbeat að endurtaka leikinn og markmiðið er að fá 3000 manns til að taka þátt. Dj Margeir mun sjá til þess að dansinn duni.
“UN Women hvetur alla til að taka þátt í Milljarður rís og láta að sér kveða. Samtökin skora jafnframt á fyrirtæki, stofnanir og skóla til að hvetja starfsfólk sitt að mæta í Hörpu og sýna samstöðu. Hægt verður að leggja frítt í Hörpu á meðan viðburðurinn stendur yfir. Við hvetjum fólk til þess að mæta snemma”, segir á heimasíðu UN Women.
Einnig verður dansað á Hofi á Akureyri, á Ísafirði og í félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði.

“Ein af hverjum þremur konum verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Í ár ætlum við að dansa af krafti fyrir allar þær konur og stúlkur sem upplifað hafa ofbeldi og sýna í verki að okkur stendur ekki á sama. Dönsum af gleði og krafti fyrir mannréttindum kvenna, fyrir heimi þar sem konur og stúlkur þurfa ekki að líða ofbeldi vegna kyns sins”, segir UN Women á Íslandi.
Byltingin hefst stundvíslega kl. 12.
Hægt er að taka þátt í herferðinni á samfélagsmiðlunum með því að setja inn myndir/myndbönd með leitarorðinu/hashtag #milljardurris14.