Heitasta ár í 125 þúsund ár

0
12
COP28 Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna - merki
COP28 Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna

 COP28. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 30.nóvember og stendur til 12.desember.  Ráðstefnan gengur undir nafninu COP28. COP er stytting á enska heitinu „Conference of the Parties“ eða ráðstefna aðildarríkja og er þar vísað til samnings um loftslagsmál.

UNFCCC eða Loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Climate) skipuleggur ráðstefnuna.  Simon Stiell frá Grenada var skipaður forstjóri stofnunarinnar í ágúst 2022. Hann skrifaði eftirfarandi grein í tilefni af upphafi COP28 og birtist hún á visir.is og í fjölmiðlum víða um heim.

Jarðefnaeldsneyti grefur undan lífskjörum

-eftir Simon Stiell forstjóra Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna

Simon Stiell forstjóri Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Simon Stiell forstjóri Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Mynd: UNFCCC

Undanfarin ár hefur verðbólga rýrt lífskjör víða um heim. Úrtölumenn hafa reynt að færa sér þessa kjararýrnun í nyt og halda því fram að aðgerðir í loftslagsmálum séu of dýrar og gangi gegn hagsmunum venjulegs fólks. Ekkert er fjær sannleikanum.

Hræðsluáróður, sem snýst um að etja saman grænum gegn fátækum, er til þess fallinn að valda sundrungu, en oft og tíðum býr að baki skammtíma gróðavon. Einungis orku-öryggi tryggir stöðuga og efnahagslega sjálfbæra framtíð. Slíkt er einnnig á ávísun á öflugt viðnám og góða fjármögnun gegn hamförum. Hún stuðlar einnig að því að hlýnun jarðar verði takmörkuð við 1.5 gráðu.

Útgjöld heimila hækka

Jarðefnaeldsneyti, þar á meða kol, olía og gas, hafa átt stóran þátt í að hækka framfærslukostnað, og valda milljörðum heimila um allan heim miklum búsifjum. Verðlag hefur sveiflast til, ekki síst vegna óvissu og átaka. Þessar hækkanir valda svo keðjuverkun þegar verð á samgöngum, matvælum, rafmagni og öðrum lífsnauðsynjum hækkar. Í mörgum ríkjum, sem eru sérstakega háð jarðefnaeldsneyti, hækkuðu útgjöld heimila um andvirði eitt þúsund Bandaríkjadala árið 2022 (u.þ.b. 138 þúsund krónur) vegna verðhækkanna á jarðefnaeldsneyti.

COP28 merki
Búast má við að COP28 verði í kastlljósi fjölmðila.

Neysluverð á enn eftir að hækka og hægja á hagvexti eftir því sem áhrif loftslagsbreytinga aukast, að mati efnahagsstofnana á borð við fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna, Seðlabanka Indlands og Evrópska seðlabankans.

Hækkun orkuverðs dregur einnig úr hagnaði fyrirtækja og dregur úr hagvexti, auk þess að grafa  undan réttinum til orku um allan heim. Verðbólga kemur harðast niður á fátækustu heimilunum.

Heitasta ár í 125 þúsund ár

Á sama tíma fara loftslagshamfarir í vöxt í öllum ríkjum. Líklegt er að þetta ár verði hið heitasta í 125 þúsund ár. Skaðvænleg hvassviðri, ófyrirsjáanlegar rigningar og flóð, hitabylgjur og þurrkar valda ógnvænlegri eyðileggju. Hundruð milljóna manna um allan heim verða fyrir barðinu á þessum ósköpum, sem kosta mannslíf og eyðileggja lífsviðurværi.

Loftslagsbreytingar
Loftslagsbreytingar. Mynd: WMO

Ekki er hægt að skrúfa fyrir krana og hætta notkun jarðefnaeldsneyti í einu vetfangi. Hins vegar eru mörg tækifæri til aðgerða enn ónotuð. Sem dæmi má nefna þá voru 7 trilljónir dala sóttir í vasa skattgreiðenda eða sparnað þeirra til að fjármagna niðurgreiðslur á jarðefnaeldsneyti. Niðurgreiðslur eru ekki til þess fallnar að vernda rauntekjur fátækustu heimilanna. Fjármagn er fært til með þeim afleiðingum að skuldir þróunarríkja hækka. Nota mætti féð til þess að bæta heilsugæslu, byggja upp innviði, til dæmis á sviði hreinnar orku og flutningskerfis, eða til að auka félagslega aðstoð við fátæka. Ef notkun jarðefnaeldsneytis er hætt hægt og bítandi á ábyrgan hátt, getur slíkt hjálpað hinum fátækustu og bætt efnahag þeirra ríkja sem eru háð þessum orkugjöfum.

Mörg úrræði ónotuð

Við hjá Loftslagsbreytingastofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Climate Change) gerðum úttekt á loftslagsaðgerðum heimsins fram til þessa og ljóst er að framfarir eru of hægar. En hún bendir einnig til að við höfum margs konar úrræði til að hraða loftslagsaðgerðum og að notkun þeirra mun styrkja hagkerfi okkar. Við höfum þekkingu og úrræði til að hraða umskiptunum og getum á sama tíma haft réttlæti að leiðarljósi og að enginn sé skilinn eftir.

COP28 Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna - merki
COP28 Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna

Milljónir manna þurfa á því að halda að valdamenn nýti sér þau úrræði sem eru fyrir hendi. Þar á meðal þarf að færa fjárfestingar í nýrri framleiðslu jarðefnaeldsneytis yfir til endurnýjanlegrar orku. Með þeim hætti má tryggja stöðuga, áreiðanlega og ódýra orku til þess að knýja hagvöxt.

Þetta snýst um framboð og eftirspurn. Við sem þurfum á orku að halda til að kveikja ljósin, þurfum á því að halda að okkur sé boðið upp á hreinan valkost.

Merki COP28 Dubai
Merki COP28 Dubai

Ofur-lausnamiðuð samvinna

Það er ástæða til bjartsýni ef ríkisstjórnir mæta til lei

ks á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í ár, COP28, í Dubai með ofur-lausnamiðaða samvinnu að leiðarljósi. Þannig mætti semja um að þrefalda framleiðslugetu heimsins í endurnýjanlegri orku. Við getum tvöfaldað orkuskilvirkni heimsins. Við getum sýnt fram á að fjárveitingar til að hjálpa ríkjum að aðlagast áhrifum loftslagsbreytinga og gera þær miðlægar í áætlanagerð, muni tvöfaldast. Við getum látið drauminn um loftslagsréttlæti rætast með því að stofna sjóð um tap og tjón vegna loftslagsbreytinga. Og við getum staðið við gamalt loforð um að fjármagna umskiptin og gera grein fyrir hvernig við ætlum að fjármagna næstu skref.

Við munum ekki breyta öllu eins og hendi sé veifað á einum fundi. En við getum mótað þá stefnu sem framtíðin tekur á þessu ári og sett markmið um hverjar skuldbindingar einstakra þjóða verða 2025.

Ég visa því á bug að láta hræðsluáróður villa mér sýn og þið ættuð að fara að dæmi mínu.

Sjá einnig:

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna COP28 sjá hér og hér.

Dagskrá COP28, sjá hér.