Lífskjör. Lífskjaralisti.
Ísland er í efsta sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna 2025 sem gefinn var út í dag. Norðmenn sem lengi hafa trónað á toppnum eru í öðru sæti ásamt Svisslendingum.
Þessi þrjú ríki hafa verið í verðlaunasætunum þremur undanfarin ár.
Listinn er tekinn saman af Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Mannþróunarskýrslu hennar. (Human Development Report).
Magnus Fröderberg/Norden.org
Heilbrigði, menntun, tekjur
Þar er sérstaklega beint sjónum að vísitölum í 193 ríkjum um heilbrigði, menntun og lífskjör á borð við tekjur.
Lífslíkur við fæðingu, þau skólaár sem búast má við að nýfætt barn eigi framundan,meðalskólaganga og þjóðartekjur eru á meðal þess sem tekið er tillit til við útreikninginn.
Diego Delso
Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0
Norðurlönd hátt á listanum
Á meðal annara ríkja á topp tíu lífskjaralistans eru Danmörk í fjórða sæti, Svíþjóð og Þýskaland í fimmta til sjötta, Ástralía í sjöunda, Hong Kong og Holland í áttunda til níunda og Belgía í því tíunda.
Finnar eru þrettándu og stór ríki á borð við Bretland (13), Bandaríkin (17) og Frakkland (26) eru neðar.
Þau ríki sem njóta minnstrar mannþróunar eru samkvæmt listanum Mið-Afríkulýðveldið, Sómalía og Suður-Súdan sem rekur lestina.
Skýrsluna í heild má finna hér.
(Greinin hefur verið uppfærð)
