Ísland styður baráttu gegn barnahermennsku í Síerra Leóne

0
494

13. febrúar 2007. Utanríksráðherra Íslands hefur ákveðið að styrkja verkefni Rauða krossins vegna baráttunnar gegn barnahermennsku í Síerra Leóne um 10,6 m.kr. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins. 

Framlagið rennur að hluta til byggingar endurhæfingarathvarfa þar sem börn og ungmenni fá bæði kennslu og sálræna aðstoð vegna afleiðinga borgarastyrjaldarinnar. Sérstök athvörf verða byggð fyrir ungar mæður þar sem þær fá aðstöðu fyrir börn sín meðan þær stunda nám. Markmiðið með þessu verkefni er að hlúa að stríðshrjáðum börnum, veita þeim menntun, sálfræðiaðstoð og kennslu í iðngreinum til að gera þau betur í stakk búin til þess að takast á við eðlilegt líf.