Alþjóðlegur dagur leiks. Hin 18 ára gamla fótboltastjarna Barcelona og Spánar, Lamine Yamal, hefur verið útnefndur nýjasti velgjörðarsendiherra UNICEF og mun berjast fyrir rétti allra barna til leiks.
Útnefningin fór fram á alþjóðlegum degi leiksins, sem haldinn er árlega 11. júní til að viðurkenna leik sem nauðsynlegan fyrir vitsmunalegan, félagslegan og líkamlegan þroska barna. 11.júní markar jafnframt setningu heimsmeistarakeppni karla í knattspyrnu, þar sem Lamine mun keppa fyrir hönd Spánar.

87 milljónir fylgjenda
„Ég er ótrúlega stoltur af því að verða velgjörðarsendiherra UNICEF,“ sagði Lamine. „Þegar ég var að alast upp átti ég ekkert nema fjölskyldu, bolta, garð og draum. Að spila fótbolta gaf mér aga, tilfinningu fyrir því að tilheyra og von um framtíðina. Ég veit hversu mikilvægt það er fyrir börn að hafa öruggan stað til að leika sér, svo þau geti einfaldlega notið þess að vera börn.“
Í hlutverki sínu sem velgjörðarsendiherra UNICEF mun Lamine einbeita sér að rétti barna til leiks og styðja börn sem búa við neyðaraðstæður af mannavöldum, svo sem átök eða náttúruhamfarir. Rúmlega 87 milljónir fylgja Yamal á samfélasmiðlum, ekki síst æskufólk, ekki aðeins í Evrópu heldur um allan heim.
Á síðasta ári afhenti hann níu ára gamalli Ahinoru frá Miðbaugs-Gíneu – heimalandi móður Lamine – samfélagsmiðlareikninga sína og leyfði henni að sýna heiminum hvernig hún upplifir réttindi sín dags daglega. Hann ræddi einnig við foreldra sína um leiki úr þeirra eigin barnæsku í stuttu myndbandi og lagði áherslu á hvernig leikur tengir saman kynslóðir.
Sjöunda hvert barn í heiminum án leikfanga
Útnefning Lamine kemur á sama tíma og UNICEF birtir uppfærð gögn um leik, sem sýna að meira en 90 milljónir barna undir 5 ára aldri – eða 1 af hverjum 7 á heimsvísu – eiga engin leikföng, heimilisgripi eða önnur einföld úrræði til leiks heima fyrir, á meðan 80 milljónir barna á aldrinum 2 til 4 ára – um 1 af hverjum 5 – leika sér ekki með foreldri eða umönnunaraðila heima.

Alþjóðlegur dagur leiks: Leikur grundvallaratriði
Rannsóknir sýna að leikur er grundvallaratriði í því hvernig börn læra, byggja upp sambönd og þroskast, sérstaklega þegar hann er stundaður með umönnunaraðila eða vini.
UNICEF skorar á stjórnvöld, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila að:
- Efla þjónustu, þar á meðal foreldrafræðslu, sem stuðlar að leik og tengslamyndun.
- Gera öllum 3 til 6 ára börnum kleift að sækja leikskóla og nám í gegnum leik.
- Tryggja að öll börn hafi aðgang að öruggum, aðgengilegum og vel við höldnum leiksvæðum.
- Sjá einnig hér.
