Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir geðþótta handtökur og óhóflega valdbeitingu í Venesúela  

0
14
Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna. Mynd. Eskinder Debebe/UN Photo

Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag, 13.ágúst, miklum áhyggjum af áframhaldandi geðþótta fjöldahandtökum í Venesúela. Jafnframt telur hann beitingu valds óhóflega að loknum forsetakosningum í landinu, þar sem nú ríki óttaþrungið andrúmsloft.

„Það er sérstaklega uggvænlegt að svo margir séu handteknir, ásakaðir eða ákærðir fyrir að stuðla að hatri eða fyrir brot á lögum gegn hryðjverkum,“ segir Türk í yfirlýsingu.

„Aldrei ber að nota sakamálarétt til að skerða um of tjáningarfrelsi, samkomufrelsi og félagafrelsi,“ segir mannréttindastjórinn.

Börn á gangi í Caracas í Venesúela. Mynd: UNICEF/Velasquez
Börn á gangi í Caracas í Venesúela. Mynd: UNICEF/Velasquez

Fjöldahandtökur

Samkvæmt opinberum yfirlýsngum hafa rúmlega 2400 verið handteknir frá 29.júlí. Þar á meðal er fólk sem hefur sætt geðþótta handtöku fyrir þátttöku í mótmælum, mannréttindafrömuðir, ungmenni, fólk með fötlun, stjórnarandstæðingar eða þeir sem taldir eru tengjast þeim. Auk þess hafa eftirlitsmenn skipaður af stjórnarandstöðuflokkum til eftirlits á kjörstöðum verið sviptir frelsi.

Í flestum þeirra tilfella, sem Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur skráð, hefur handteknu fólki ekki verið leyft að velja sér verjendur eða hafa samband við fjölskyldur sínar.

„Ég hvet til tafarlusrar lausnar allra sem handteknir hafa verið af geðþótta og að öllum verði tryggð réttlát málsmeðferð,“ segir Türk

Nirma, flóttakona frá Venesúela með 8 mánaða gamalt barn sitt í Willemstaad í Curacao.
Nirma, flóttakona frá Venesúela með 8 mánaða gamalt barn sitt í Willemstaad í Curacao. Mynd:. IOM Gema Cortes

Óhófleg vadlbeiting

„Óhófleg valdbeiting lögreglu og banvænar árásir vopnaðra stuðningsmanna stjórnvalda á mótmælendur mega ekki endurtaka sig.”

Jafnframt hafa borist fréttir af ofbeldisverkum mótmælenda gegn opinberum embættismönnum og byggingum. Ofbeldi er aldrei lausnin, að mati mannréttindastjórans.

„Rannsaka ber öll dauðsföll sem tengjast mótmælunum og láta gerendur sæta ábyrgð í samræmi við sanngjarna málsmeðferð og í samræmi við staðla um sanngjörn réttarhöld,“ sagði Türk.

Sagt er að listum yfir fólk, sem hvatt hafi til ofbeldisverka, sé dreift á samfélagsmiðlum. Þar eru, meðal annars, nöfn stjórnarandstæðinga og blaðamanna.

Að auki eru yfirvöld hvött til að sækja til saka þá sem tekið hafi þátt í glæpsamlegri starfsemi, þar á meðal fyrir löglegar aðgerðir á borð við afskipti af opinberum málefnum, þátttöku í friðsamlegum mótmælum og færa sér í nyt tjáningarfrelsi.

Þinghúsið í Caracas.
Þinghúsið í Caracas. Mynd: UN News.

Áhyggjur af hugsanlegri lagasetningu

Mannréttindastjórinn hefur einnig lýst áhyggjum sínum af hugsanlegri samþykkt löggjafar um eftirlit, skráningu, starf og fjármögnun almannasamtaka, auk löggjafar til höfuðs fasisma, ný-fasisma og fleiru.

„Ég hvet yfirvöld til að láta hjá líða að samþykkja þessa löggjöf eða neina álíka sem skerðir borgaralegt og lýðræðislegt rými í landinu í þágu félagslegrar samheldni og framtíðar landsins,“ sagði Türk. „Þá er ég uggandi yfir því að vegabréf sumra einstaklinga hafa verið ógilt. Slíkt virðist vera gert í hefndarskyni fyrir löglegar athafnir í landinu. Allt þetta eykur spennu og sundrar þjóðfélagsvefnum í Venesúela.“

„Alþjóðasamfélagið hefur þýðingarmiklu hlutverki að gegna í að efla víðtæka samræðu með mannréttindi Venesúelabúa að leiðarljósi. Embætti mitt er eins og ætíð til þjónustu reiðubúið,“ bætti mannréttindastjórinn við.

Sjá einnig hér: Fjórði hver Venesúelabúi hefur hrakist úr landi.