A-Ö Efnisyfirlit

Öryggisráðið: Bandaríkin, Rússland og Kína sameinast um Úkraínu-ályktun

Vara-utanríkisráðherra Úkraínu, Betsa Mariana, ræðir við blaðamenn fyrir utan fundarsal Öryggisráðsins
Vara-utanríkisráðherra Úkraínu, Betsa Mariana, ræðir við blaðamenn fyrir utan fundarsal Öryggisráðsins. Mynd:. UN Photo/Eskinder Debebe

Allsherjar innrás Rússa í Úkraínu.

Þremur árum eftir allsherjar innrás Rússa í Úkraínu hefur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkt ályktun þar sem hvatt var til þess að bundinn yrði endi á stríðið.

Ályktunin var samhljóða tillögu Bandaríkjanna sem var lögð fram fyrr um daginn á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þar var látið hjá líða að nefna ábyrgð Rússa og allsherjar innrás Rússa í Úkraínu.

Varafastafulltrúi Bandaríkjanna Dorothy Shea ávarpar fund Allsherjarþingsins.
Varafastafulltrúi Bandaríkjanna Dorothy Shea ávarpar fund Allsherjarþingsins. Mynd: UN Photo/Manuel Elías

Bandaríkin, Rússland og Kína voru á meðal tíu ríkja sem samþykktu tillöguna í Öryggisráðinu. Bretland, Danmörk og Frakkland voru á meðal fimm Evrópuríkja, sem sátu hjá.

Samþykkt Allsherjarþingsins

Allsherjarþingið hafði fyrr um daginn greitt atkvæði um sömu tillögu Bandaríkjanna og aðra tillögu frá Úkraínu. Evrópusambandsríki og Úkraínu fengu samþykktar breytingar á bandarísku tillögunni. Þar voru tekin af öll tvímæli um ábyrgð Rússa á innrásinni og lýst stuðningi við fullveldi Úkraínu.  Svo fór að tillagan var samþykkt, en Bandaríkjamenn sátu hjá.

Tillaga Úkraínu var einnig samþykkt með 93 atkvæðum, 65 sátu hjá en 18 voru á móti. Sjá nánar hér, hér og hér.