Auglýsingakeppni um vatn:

0
429
FWW DbD webbanner 300x250 EN-01

Norræna ráðherranefndin til samstarfs við SÞ

FWW DbD webbanner 300x250 EN-01

Sameinuðu þjóðirnar í Brussel og Norræna ráðherranefndin ýttu í dag úr vör evrópskri auglýsingasamkeppni undir fyrirsögninni “The Future We Want – Drop by Drop“ sem nær til vatns, græna hagkerfisins og Rio+20.

Samkeppnin er haldin um alla Evrópu og er liður í alþjóðlegri herferð Sameinuðu þjóðanna sem nefndist The Future We Want í aðdraganda Rio+20: Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem haldin verður 20.-22. júní 2012.

Norræna ráðherranefndin veitir fyrstu verðlaun, Verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar, og 5.000 evrur.

-Norðurlönd hafa bolmagn og pólitískan vilja til þess að vera í fararbroddi í sjálfbærum lausnum og grænum hagvexti. Marmiðið með þessari samkeppni er að hvetja og stuðla að þátttöku allra Evrópubúa í baráttunni fyrir betri og vistvænni framtíð, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherraefndarinnar.

Með samkepppninni er vonast til að einstaklingar og fyrirtæki í 48 Evrópuríkjum hanni blaðaauglýsingar sem vekji fólk til vitundar og hvetji það til að finna grænar lausnir á stjórnun og varðveislu vatnsauðlinda, nú og fyrir kynslóðir framtíðarinnar.

-Áður en við ákváðum að taka þátt í herferð Sameinuðu þjóðanna í aðdraganda Rio+20 „The Future We Want“, skoðuðum við ólík málefni og komumst að raun um hversu mikið við sóum af vatni Evrópu, væri það málefni sem líklega snerti alla. Og ef hönnuðir leggjast á eitt mun það hafa mun meiri áhrif, segir Afsané Bassir-Pour, framkvæmdastjóri UNRIC.

-Við erum afar ánægð með að Norðurlöndin séu samstarfsaðilar að þessu verkefni, segir Afsané Bassir-Pour. Hvernig geta íbúar á svæði sem nær yfir Grænlandsjökul, norðurhöf og Eystrasaltið að ógleymdum þúsundum vatna Finnlands látið hjá líða að hugsa um vatn? Ríkin fimm hafa gegnt mikilvægu hlutverki þegar kemur að grænum lausnum og sjálfbærri þróun frá Brundtland-nefndinni til dagsins í dag segir Bassir-Pour.

Herferðin “The Future We Want – Drop by Drop” er skipulögð af UNRIC í samstarfi við skrifstofu UNEP í Brussel.

Achim Steiner, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum og framkvæmdastjóri UNEP, bendir á að með því að fjárfesta aðeins 0,16 prósent af vergri þjóðarframleiðslu í vatnsverndun megi koma í veg fyrir vatnsskort og á skömmum tíma fækka um helming þeim heimsbúum sem ekki hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu.

-Með því að tryggja stuðning almennings í gegnum Drop by Drop auglýsingaherferðina er hægt að stuðla að breyttum hugsunarhætti og styðja GreenUp! verkefni UNEP í aðdraganda Rio+20, segir Dr. Steiner.
Séguela og Hedegaard í dómnefnd

Tveimur tillögum, auk fyrstu verðlauna verður veitt viðurkenning, annari í flokki ungmenna og hinni fyrir flest atkvæði almennings. Verðlaunahafinn verður valinn af dómnefnd auglýsingafólks og alþjóðlegra sérfræðinga:

    Jacques Séguéla, varaformaður stjórnar Havas,
    Catarina de Albuquerque, sérstakur álitsgjafi um rétt fólks til aðgangs að öruggu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu,
    Connie Hedegaard, sem fer með málefni loftslagsaðgerða í framkvæmdastjórn ESB,
    Omar Vulpinari, yfirmaður sjónrænnar miðlunar hjá Fabrica
    John Vidal; umhverfisritstjóra dagblaðsins the Guardian
    Jens Assur; ljósmyndari frá Svíþjóð
    Ferah Perker; grafískur hönnuður frá Tyrklandi.

Byrjað verður að taka við tillögum þann 10.desember 2011, á alþjóða mannréttindadeginum, og rennur frestur ú á miðnætti 29.febrúar 2012. Tilkynnt verður um þann sem hlýtur flest atkvæði almennings 22. mars 2012, á alþjóðadegi ferskvatnsins; um verðlaunahafa í flokki ungmenna 11. apríl 2012, og aðalverðlaunahafann 5. júní, á alþjóðadegi umhverfisins.

Nánari upplýsingar á vefsíðu samkeppninnar

UNRIC, upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu sér um upplýsingagjöf til 22 Evrópuríkja.

UNEP er umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna. Skrifstofa UNEP í Brussel er meðskipuleggjandi samkeppninnar.