Alþjóðlegur dagur samstöðu með palestínsku þjóðinni er haldinn að þessu sinni í skugga tveggja ára skelfilegra þjáninga Gasasbúa og skömmu eftir að vopnahléli var lýst yfir.
Alþjóðlegi dagurinn er haldinn árlega 29.nóvember. Þann dag árið 1947 samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ályktun um skiptingu Palestínu í tvö ríki; ríki Araba og ríki Gyðinga.
Fundur alsherjarþingsins 29.nóvember 1947 vakti heimsathygli og beindist hún í fyrstu að fastafulltrúa Íslands Thor Thors. Afstaða sem hann kynnti, sem talsmaður nefndar sem hafði málið til umfjöllunar, skipti sköpum um framhaldið. Spurningin var hvort halda skyldi áfram umfjöllun um skiptingu Palestínu eða ganga til atkvæða.
Þór Whitehead sagnfræðingur sem rannsakað hefur sögu Thors sendiherra segir að hann hafi flutt magnaða ræðu. Þar hafi hann sagt að allar leiðir til að ná samkomulagi á milli Gyðinga og Araba hefðu verið þrautkannaðar án árangurs. Þótt gyðingar hafi fagnað samþykktinni en Arabaþjóðir talið niðurstöðuna ósanngjarna, telur Þór að hún hafi mikla þýðingu fyrir alþjóðastjórnmál samtímans og málstað Palestínumanna.
„Samþykkt allsherjarþingsins um skiptingu Palestínu er einn grundvöllurinn undir kröfu Palestínumanna um sjálfstætt ríki og Jerúsalem var ætlað að vera undir alþjóðastjórn,” sagði Þór í viðtali við vefsíðu UNRIC 2015.
Tveggja ríkja lausn
Í ávarpi í tilefni dagsins hvatti António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til þess að þessari tveggja ríkja lausn yrði hrundið í framkvæmd.
„Ég ítreka ákall mitt um að bundinn verði endi á ólöglegt hernám palestínsks landsvæðis,” sagði Guterres. „Bæði alþjóðadómstóllinn og allsherjarþingið hafa lýst hernámið ólöglegt. Ég hvet til óafturkallanlegs framgangs í átt til tveggja ríkja lausnar, þar sem Ísrael og Palestínu byggju við frið og öryggi hlið við hlið.”
Tugir þúsunda manna hafa verið drepnir undanfarin ár á Gasasvæðinu. Þar hefur einnig orðið eitt mesta efnahagshrun sem um getur. Tölur Sameinuðu þjóðanna sýna að þjóðarframleiðsla á Gasa hafi minnkað um 83% frá 2023 til 2024. Þjóðarframleiðsla á mann nemur nú aðeins 16 Bandaríkjadölum á mann á ári, það er aðeins 50 cent á dag. Það er með því minnsta sem dæmi eru um í heiminum. Og þótt vopnahléi hafi verið komið á halda börn áfram að deyja.
67 börn drepin frá vopnahléi
„Að minnsta kosti 67 börn hafa verið drepin frá vopnahléi,“ sagði Annalena Baerbock forseti allsherjarþingsins á þriðjudag á sérstökum fundi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York í tilefni alþjóðlega dagsins.
Eftirlifendur syrgja dauða tuga þúsunda vina og ættingja, en þriðjungur látinna eru börn. Þúsundir til viðbótar hafa særst. Hungur, sjúkdómar og áföll herja á Gasabúa. Skólar, heimli og sjúkrahús eru oft og tíðum rústir einar.
Óréttlæti viðgengst einnig á vesturbakka Jórdanar, þar á meðal í Austur-Jerúsalem. Þar mega Palestínumenn þola aðgerðir Ísraelshers, ofbeldi landnema, stækkun landnáms, brottrekstur íbúa af heimilum og búsvæðum, eyðileggingu heimila og hótun um innlimun í Ísraelsríki.
Of lítil mannnúðaraðstoð
Aðstoð berst Gasabúum eftir vopnahéið en í miklu minna mæli en nauðsyn krefur. Engu að síður hafa Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra gnægð birgða í nágrenninu.
Síðustu vikur hafa Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra gert allt sem í þeirra valdi stendur til að minnka afleiðingar rigningartímas á íbúa um allt Gasasvæðið.
Dreift hefur verið tjöldum og teppum og reynt að hindra vatnsflóð þar sem fólk hefur leitað skjóls.
Frá því vopnahléi var lýst yfir 10.október hafa ísraelsk yfirvöld haldið áfram að hindra flutning lífsnauðsynlegra hjálpargagna til Gasasvæðisins. Samt sem áður hefur Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna getað hafið starfsemi á ný á hluta svæðisins. Matvælaaðstoð hefur aukist en nær engan veginn að fullnægja þörfum íbúanna.
Fyrstu þrjár vikur nóvember aðstoðuðu Sameinuðu þjóðirnar 100 þúsund heimili með matargjöfum. Það fullnægir þó aðeins 50-75% kaloríuþarfar fólksins í 10 daga. Í október komu Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar 150 þúsund barnshafandi konum og mæðrum með börn á brjósti til aðstoðar með fæðubótarefnum. Um 50 þúsund börn hafa fengið vetrarfatnað, sem er aðeins dropi í hafið.
„Það verður að hleypa lífsnauðsynlegri mannúðaraðstoð til Gasa í því umfangi sem til þarf. Alþjóðasamfélaginu ber að standa þétt við bakið á Palestínu-flóttamannahjálpinni (UNRWA). Hún er ómissandi líflína fyrir milljónir Palestínumanna, þar á meðal flóttamenn,“ sagði Guterres í ávarpi sínu.
