Sendimenn komnir til Súdans í þeirri von að hleypa nýju lífi í friðarferlið í Darfur

0
484

12. febrúar  2007 Sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og starfsbróðir hans frá Afríkusambandinu eru komnir til Khartoum , höfuðborgar Súdans í fimm daga heimsókn. Ætlun þeirra er að hleypa nýju lífi í friðarferlið í hinu stríðshrjáða Darfur héraði

 

Jan Eliasson og Salim Ahmed Salim erindreki Afríkusambandsins munu eiga fundi jafnt með þeim sem undirrituðu og þeim sem ekki undirrituðu friðarsamkomulagið í Darfur á síðasta ári. Fyrst verður fundað í Khartoum en síðan í Darfur . Eliasson and Dr. Salim munu í viðræðunum leggja áherslu á að finna lausn á pólitískum deilum og mannúðarvanda sem herja á Darfur þar sem 200 þúsund manns hafa látist og 2 milljónir hrökklast frá heimilum sínum frá árinu 2003. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði í síðasta mánuði að Darfur væri “alvarlegasti mannúðarvandi veraldar”. Sjá nánar: http://www.un.org/apps/news/story.asp?NewsID=21535&Cr=sudan&Cr1=