SÞ sýnir verðlaunamynd um hrikaleg örlög barnahermanna í Úganda

0
474
alt

Margverðlaunaða heimildarmyndin Stríðsbörnin sem fjallar um barnahermenn í Úganda verður sýnd í Bíó Paradís fimmtudaginn 10. febrúar að viðstöddum höfundi myndarinnar Bryan Single. altStríðsbörnin (www.childrenofwarfilm.com) er mynd um hrikaleg örlög barna sem hneppt hafa verið í ánauð sem stríðshermenn og leið þeirra til bata.  Myndin er sýnd í Bíófundaröð sem Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna ásamt UNICEF og Félagi Sameinuðu þjóðanna.

Að lokinni sýningu myndarinnar munu leikstjórinn Bryan Single og Flóki Guðmundsson fjáröflunarfulltrúi Barnahjálpar S.þ. á Íslandi segja frá reynslu sinni frá stríðshrjáðum svæðum í norðurhluta Úganda. 
 

Fylgst er með því í myndinni hvernig starfsmenn á heimili sem Belgíumenn reka í Úganda hjálpa börnum sem frelsuð hafa verið úr ánauð, að horfast í augu við örlög sín. Þau segja frá lífi sínu en sum hafa verið neydd til að myrða foreldra sína, drepa önnur börn og verið misnotkuð kynferðislega. Í einu magnaðasta atriði myndarinnar stendur ung stúlka augliti til auglitis við roskinn mann sem hún hafði verið neydd til að þjóna kynferðislega.
 
Svokallaður Andspyrnuher Drottins (The Lord´s Resistance Army)  í Úganda undir forystu stríðsglæpamannsins Joseph Kony er talinn hafa rænt 35 þúsund börnum í Úganda og neytt þau til fylgis við sig. Talið er hundrað þúsund manns hafi látist í þessum hernaði og hálf önnur milljón orðið að flýja heimili sín á þeim tveimur áratugum sem Kony og böðlar hans hafa herjað á norðurhluta Úganda.
   
Stríðsbörnin var sýnd á sérstakri sýningu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að viðstöddum sendiherrum aðildarríkja samtakanna og aðalframkvæmdastjóranum Ban Ki-moon í október síðastliðnum. Þá sameinuðust Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar um sýningu myndarinnar í Brussel á Mannréttindaginn 10. desember síðastliðinn og fylgdi baráttukonan Bianca Jagger myndinni úr hlaði. 

      
Sjá nánar: http://en.wikipedia.org/wiki/Children_of_War og www.childrenofwarfilm.com