A-Ö Efnisyfirlit

Stöðva ber yfirtöku Ísraels á öllu Gasasvæðinu

Barn sem þjáist af vannæringu á sjúkrahúsi í Gasa-borg.
Barn sem þjáist af vannæringu á sjúkrahúsi í Gasa-borg. Mynd;. © UNICEF/Mohammed Nateel

Gasasvæðið. Mannúðaðstoð. Yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum segir að Ísrael beri þegar í stað binda endi á fyrirætlanir um að hernema gjörvalt Gasasvæðið.

Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir í yfirlýsingu (8.ágúst) að nýjar fyrirætlanir Ísrael brjóti í bága við alþjóðalög. Vitnar hann til nýlegs álits Alþjóðadómstólsins í Haag. Þar er Ísrael gert að láta af hernámi sínu og viðurkenna tveggja ríkja lausn og sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna.

Türk segir að hvers kyns stigmögnun átaka Ísraels og Hamas muni „leiða til enn umfangsmeiri uppflosnunar íbúanna. Meiri manndrápa, enn meiri ólíðandi þjáninga, glórulausrar eyðileggingar og viðurstyggilegra glæpa.“

Mannúðaraðstoð. Nærri Zikim landamærastöðvarinnar á norðurhluta Gasasvæðisins. Mynd: SÞ
Mannúðaraðstoð. Nærri Zikim landamærastöðinni á norðurhluta Gasasvæðisins. Mynd: SÞ

Í stað þess að magna átökin „bæri Ísraelsstjórn að snúa sér að því af fullum krafti að því að bjarga lífi Gasabúa. Leyfa þarf mannnúðaraðstoð að berast að fullu og óhindrað til svæðisins,“ sagði Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Hann hefur áður varað Ísrael að ríkið kunni að gerast sekt um stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð, með því að hindra flutning mannúðaraðstoðar til Gasasvæðisins.

 Drengur fær aðhlynningu á Al Helou sjúkrahúsinu.
Drengur fær aðhlynningu á Al Helou sjúkrahúsinu. Mynd: © UNICEF/Rawan Eleyan

Mannúðaraðstoð: Ástandið versnar stöðugt

Þrátt fyrir yfirlýsingar Ísraels 27.júlí um „dagleg hlé á árásum í mannúðarskyni” berst allt of lítil aðstoð til Gasasvæðisins að sögn Palestínu-flóttamannahjálparinnar (UNRWA).

Alls hafa 1373 Palestínumenn verið drepnir við að reyna að afla sér matar á dreifingarstöðum svokallaðrar GHF mannúðarstofnunari Ísrael hefur hindrað Sameinuðu þjóðirnar í að dreifa matvælaaðstoð frá lokum maí-mánaðar. GH veitir mannúðaraðstoð á örfáum stöðum á Gasasvæðinu með samþykki og stuðningi Ísraelshers. Þá hafa 514 hafa verið drepnir við flutningaleiðir bílalesta að sögn Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (OHCHR).

Fjölskylda hvílir sig eftir að hafa verið rekin á brott frá Deir Al-Balah.
Fjölskylda hvílir sig eftir að hafa verið rekin á brott frá Deir Al-Balah. Safnmynd: UNRWA

Hungurdauði

Enn hefur Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) varað við því að vannæring færist í aukanna sökum takmarkaðra matarsendinga og hungurdauði fari vaxandi.

„Nærri 12 þúsund börn undir fimm ára aldri hafa verið greind með bráða-vannæringareinkenni í júlímánuði; sem er hið mesta sem dæmi eru um á einum mánuði,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus forstjóri WHO.